Þriðjudagur 15. september
Fasteignaleitin
Opið hús:19. sept. kl 12:30-13:00
Skráð 15. sept. 2026

Listabraut 5

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-103
121.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
84.900.000 kr.
Fermetraverð
698.191 kr./m2
Fasteignamat
83.550.000 kr.
Brunabótamat
55.860.000 kr.
Mynd af Árni Helgason
Árni Helgason
Löggiltur Fasteignasali
Byggt 1961
4. hæð · efsta
Garður
Svalir
Bílskúr
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2032012
Landnúmer
107325
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Endurnýjað að hluta
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
tvennar svalir
Lóð
3,97
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Á aðalfundi 2026 var samþykkt að fá tilboð í að tengja rennur á bílskúr niður í ræsi og fá tilboð í leiktæki á lóð húsfélagsins.  Sjá aðalfundargerð 16.03.2026.
Gallar
Brotnar flísar í eldhúsi.
Kvöð / kvaðir
Kvaðir eru á lóð um leiksvæði barna, akbraut og opin bílastæði auk almennra kvaða.
Domusnova fasteignasala hefur fengið í einkasölu mjög góða 4ra herbergja íbúð að Listabraut 5 ásamt bílskúr. Íbúðin er að nokkru upprunaleg en viðarparket í stofu, herbergjum og holi. Skipt hefur verið um glugga á suðurhlið. Íbúðin er björt og rúmgóð, svalalokun á suðursvölum. Bílskúr tilheyrir íbúðinni í bílskúralengju norðan húss. Frábær staðsetning, stutt í skóla, leikskóla, íþróttasvæði og verslanir. Stór lóð er við húsið. Húsinu hefur verið vel við haldið undanfarin ár. Íbúðin er á efstu hæð með miklu útsýni af tvennum svölum.

Til að fá söluyfirlit sent smellið hér
Sjáðu myndband af eigninni hér 
Athugið að húsgögn eru ekki raunveruleg og er myndbandið til að sýna möguleika.

Þegar komið er inn í íbúðina er eldhús til vinstri og stofa/borðstofa þar fyrir innan og eru gluggar til suðurs og vesturs, auk svala til suðurs. Salerni til hægri ásamt 3 herbergjum. Úr hjónaherbergi er útgengt á svalir til vesturs.

Stofa er ágætlega stór og er með viðarparketi á gólfi, útgengt á svalir til suðurs, svalalokun er á svölunum.
Eldhús er rúmgott og þar eru flísar á gólfi, ágæt innrétting með góðri granít-borðplötu.
Baðherbergi er upprunalegt og þarfnast endurnýjunar.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi, þar er góður nýlegur skápur og hægt að ganga út á vestursvalir úr herberginu.
Tvö önnur herbergi með parketi á gólfi og er annað  með nýlegum fataskáp.

Í sameign er sérgeymsla sem er rúmlega 4fm að stærð, hjóla- og vagnageymsla og sameiginlegt þvottahús.
Bílskúr er í bílskúralengju á norðurkanti lóðar, rafmagnshurðaopnun, vatn og rafmagn, bílskúrinn er skráður 20,8fm..

Viðhald hefur verið nokkuð á undanförnum árum skv. upplýsingum seljenda og má þar nefna:
2026 voru útidyrahurðir pússaðar og lakkaðar.
2024 voru dyrasímar endurnýjaðir.
2020 var dregið nýtt rafmagn úr töflu í íbúð.
2017 var farið í ytra byrði hússins, skipt var um pappa og járn á þaki og húsið múrviðgert á þremur hliðum, filtað og málað, fjórða hliðin er klædd. Einnig var skipt um glugga á suður og austur hliðum, kjallaragluggum á norðurhlið og opnanleg fög endurnýjuið og skipt um gler í gluggum í sameign og skipt um gler í þeim gluggum á vesturhlið sem þess þörfnuðust. Þá var einnig sett svalalokun.  
2016 gólfteppi í sameign endurnýjuð.
2014 voru lagnir utanhúss, bílaplani og stétt endurnýjaðar. Skólp- og frárennslislagnir einnig út í brunna. Drenlagnir og regnvatnslagnir í bilaplani og gangstéttum jafnframt endurnýjaðar, skipt um jarðveg á bílaplani og það malbilkað. Einnig var þá endurnýjuð gangstétt við húsið og hún hellulögð, ný lýsing sett upp og snjóbræðsla.
2012 voru raflagnir í sameign endurnýjaðar.
 
Nánari upplýsingar veita:
Árni Helgason löggiltur fasteignasali / s.663 4290 / arni@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
  3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
21/11/200721.220.000 kr.24.500.000 kr.121.6 m2201.480 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1972
20.8 m2
Fasteignanúmer
2032012
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
5.910.000 kr.

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skógarvegur 6
3D Sýn
Bílastæði
Skoða eignina Skógarvegur 6
Skógarvegur 6
103 Reykjavík
145.4 m2
Fjölbýlishús
423
928 þ.kr./m2
134.900.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 50A
3D Sýn
Skoða eignina Skipholt 50A
Skipholt 50A
105 Reykjavík
106.7 m2
Fjölbýlishús
312
806 þ.kr./m2
86.000.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 5
3D Sýn
Skoða eignina Skipholt 5
Skipholt 5
105 Reykjavík
110.3 m2
Fjölbýlishús
413
815 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Grettisgata 98
3D Sýn
Skoða eignina Grettisgata 98
Grettisgata 98
105 Reykjavík
116.9 m2
Fjölbýlishús
513
769 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin