Hraunhamar fasteignasala kynnir: Glæsilega og bjarta 4ra herbergja endaíbúð á 3. hæð í nýlegu lyftufjölbýli á frábærum stað í Skarðshlíðarhverfinu í Hafnarfirði. Leikskóli og skóli eru í göngufjarlægð.
Íbúðin er skráð skv. FMR 108 fm en þar af er 6,7 fm geymsla á jarðhæð. Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing:Forstofa með fataskáp. Gott
hol.
Opið alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi.
Vönduð innrétting í
eldhúsi frá Axis
með góðu skápaplássi og sjónsteyptri borðplötu. Innbyggð uppþvottavél.
Björt
stofa en þaðan er útgengt á
svalir sem snúa í suðurátt.
Rúmgott
hjónaherbergi með fataskáp.
Tvö svefnherbergi bæði með fataskáp.
Smekklegt flísalagt
baðherbergi, upphengt salerni, walk in sturta og rúmgóð innrétting með sjónsteyptri borðplötu.
Rúmgott
þvottahús inn af anddyri með góðri innréttingu. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Skolvaskur.
Sér geymsla í sameign og sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Gólfefni eru parket og flísar.
Smekkleg íbúð sem vert er að skoða. Einstaklega góð staðsetning í Skarðshlíðarhverfinu í Hafnarfirði í göngufjarlægð við skóla og leikskóla. Nánari upplýsingar veita:
Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða á netfangið glodis@hraunhamar.is og
Valgerður Ása Gissurardóttir löggiltur fasteignasali í s. 791-7500 eða á netfangið vala@hraunhamar.isSkoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. Þjónustusamningi
Hraunhamar er ein af elstu fasteignasölum landsins, stofnuð 1983 og fagnar því 41 ára afmæli á árinu 2024.
Hraunhamar í farabroddi í 41 ár! – Hraunhamar.is Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.