BYR fasteignasala kynnir í einkasölu BLÁARGERÐI 14B, 700 Egilsstaðir. Fjögurra herbergja endaraðhús með innbyggðum bílskúr.
Smellið hér fyrir staðsetningu. Húsið er timburhús, byggt árið 2019 með innbyggðum bílskúr. Húsið skiptist í íbúð 108.7 m² og bílskúr 32.8 m², samtals 141.5 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Forstofa, gangur, alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymsla, bílskúr.
Nánari lýsing: Forstofa með tvöföldum fataskáp.
Gangur er innan við forstofu, liggur að öðrum rýmum eignarinnar. Lúga er upp í þakrými frá gangi, geymslurými.
Alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, útgengt er frá eldhúsi út á timburverönd og aflokaðan garð.
Eldhús, hvít innrétting með eyju, pláss fyrir þrjú sæti við eyju, spanhelluborð ofn og örbylgjuofn í vinnuhæð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður ísskápur fylgja.
Þrjú svefnherbergi. Hjónaherbergi, fjórfaldur fataskápur.
Barnaherbergi, tvöfaldur fataskápur í báðum herbergjum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, vaskinnrétting og skápur, og sturta, handklæðaofn, gluggi og öndunartúða.
Þvottahús og geymsla saman í rými, flísar á gólfi. Innangengt er úr þvottahúsi í bílskúr, rafræn loftun er úr þvottahúsi.
Bílskúr, flísar á gólfi. Bílskúrshurðaopnari. Milliloft er yfir aftasta hluta í bílskúr, loft er upptekið í bílskúr, vaskur. Rafmagnstafla og gólfhitagrind eru í bílskúr, þriggja fasa rafmagn.
Gönguhurð er í bílskúr við aðalinngang hússins.
Gólfefni: Harðparket er á alrými, gangi og svefnherbergjum. Flísar eru á forstofu, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu, bílskúr.
Gólfhiti er í eigninni. Danfoss stýringar á veggjum. Upptekið loft og innbyggð lýsing er í alrými. Vegghengdur skápur á gangi og í borðstofu fylgir með.
Húsið Bláargerði 12-14 samanstendur af fjórum raðhúsaíbúðum. Bláargerði 14B er endaraðhús með innbyggðum bílskúr. Húsið er timburhús á einni hæð klætt að utan með liggjandi báruklæðningu. Timbur hurðar og gluggar. Bárujárn á þaki. Lóð er grasi gróin, timburverönd er aftan við húsið endilangt, timburveggur er á milli húsa. Möl er í aðkomu og bílaplani, hellulagt er við inngang hússins, sorptunnuskýli fyrir þrjár tunnur. Lóð er sameiginleg 1364,0 m² leigulóð í eigu Múlaþings.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 250-6138.Stærð: Raðhús 108.7 m². Bílskúr 32.8 m². Samtals 141.5 m².
Brunabótamat: 61.050.000 kr.
Fasteignamat: 69.450.000 kr.
Byggingarár: 2019
Byggingarefni: Timbur