Kasa fasteignir 461-2010.
Hólmatröð 3A - Nýbygging - Aðeins ein óseld íbúð í húsinu!
Björt og falleg 4 herbergja 105,4 fm íbúð með innbyggðum 30,5 fm bílskúr og 14,4 fm geymsluhúsi í ný raðhúsi í Hrafnagilshverfi. Samtals eru birtir fermetrar eignar 150,3
Eignin skiptist í forstofu, gang, stofu og eldhúsi í opnu rými, baðherbergi með þvottaaðstöðu, þrjú svefnherbergi, bílskúr og geymsluskúr.
Forstofa: Þar er vínyl parket á gólfi og fataskápur.
Eldhús: Hvít innrétting með góðu skápa og skúffuplássi. Bakraofn og combi ofn í vinnuhæð, span helluborð og pláss fyrir ísskáp í innréttingu.
Stofa: Vínyl parket á gólfum, gengið er út um rennihurð á steypta verönd.
Baðherbergi: Er mjög rúmgott með góðri innréttingu. Borðvaskur, handklæðaofn, upphengt salerni og innangeng sturta með dökku sturtugleri. Einnig er innrétting fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Flísar á gólfum.
Svefnherbergi: Eru þrjú í eigninni, öll með fataskápum og vínyl parketi. Í einu barnaherberginu er lúga upp á háaloft með fellistiga, gott geymsluloft.
Bílskúr: Þar er rafdrifin bílskúrshurð, flísar á gólfi og vegghengdur vaskur.
Geymsluskúr: Er á lóðinni, hann er einangraður og er með gólfhita, vínylparketi og opnanlegum glugga. Nýtist mjög vel sem herbergi/vinnuherbergi.
- Loftadúkur og upptekin loft með innfeldri lýsingu eru í alrými.
- Lagnir fyrir heitanpott á verönd.
- Snjóbræðsla í bílaplani og verönd.
- Plejd ljósakerfi.
- Gólfhiti í öllum rýmum.
- Eignin er laus til afhendingar fljótlega.
Skilalýsing
Almennt :
Húsið er innflutt timburhús reist á staðsteyptri steinplötu, klætt að utan með alubond álklæðningu standandi kassettum. Skýli við innganga og skjólveggir eru klæddir með standandi timburklæðningu máluð rauð. Ef mismunur er milli skilalýsingar og byggingarlýsingar gildir skilalýsing. Garðhýsi/ útigeymsla eru klædd að utan með liggjandi timburklæðningu, að innan með veggjapanel og loft með loftaklæðningu. Lofthæð garðhýsa er frá tveimur metrum til 2,3m að austan. Þau eru með gólfhita, útikrana fyrir kalt vatn og tengimöguleika fyrir heitt og kalt vatn ásamt skólplögn. Gluggar og hurðir eru samskonar og í íbúð.
Stéttar og bílastæði : Verönd við hús og bílastæði eru steypt með lokuðu snjóbræðslukerfi, stétt við Garðhýsi er steypt án snjóbræðslu.Tengimöguleiki er fyrir heitan pott bæði vatn og rafmagn.Sorptunnuskýli er fyrir þrjár tunnur .Húsnúmer sett upp á áberandi stað.
Lóð: Lóð er annaðhvort þökulögð eða búið að sá grasfræi.
Gluggar og útihurðir: Gluggar eru hvítir að innan en svartir að utan sem og hurðir, tegund Viking. Hurð út á verönd er rennihurð.
Fráveitu og regnvatnslagnir: Frárennslis- og regnvatnslagnir komnar og tengdar við tæki og fulltengdar við götulagnir og brunna. Brunnar frágengnir með lokum, rétt undir yfirborði. Þakniðurföll og rennur úr svörtu járni, þakrennur svartar utanáliggjandi.
Raflögn: Raflögn er fullfrágengin. Innlagnaefni (fyrir rafmagn, tölvu/síma, hitanema og dyrabjöllu) er hvítt glans og sett upp í samræmi við raflagnateikningar.
Ljós eru samkvæmt lampaplani, þau ljós sem fylgja eru ljósakúplar á baði, geymsluskúr og bílgeymslu. Innfelld lýsing er í stofu og eldhúsi önnur ljós innan íbúðar fylgja ekki.
Dimmar fyrir ljós eru frá Plejd, hægt er að stýra ljósum með appi í snjallsíma eða spjaldtölvu.
Veggljós er á verönd, yfir aðalinngang og bílgeymsluhurð er LED borði í álprófíl.
Útitenglar IP44 eru á verönd og að framanverðu utan á húsi. Ídráttarrör fyrir bílhleðslu eru í beði við ruslatunnuskýli. Einnig eru ídráttarrör fyrir heitanpott og garðlýsingu.
Reykskynjari í íbúð og bílgeymslu fylgja.
Ljósleiðarar verða komnir inn í töflu en eftir verður að tengja og ganga frá endabúnaðiþjónustuveitu (Míla eða Tengir) sem kaupandi sér um og semur við sína þjónustuveitu.
Tengi fyrir uppþvottavél, þvottavél og þurrkara eru samkvæmt raflagnateikningu.
Hiti og neysluvatn: Gólfhiti er í öllum rýmum. Lagnagrind frágengin, með mótorloka fyrir gólfhita og nema á vegg í rýmum fyrir gólfhita. Neysluvatn er tekið í gegnum varmaskipti. Neisluvatnslagnir eru rör í rör kerfi. Tengimöguleikar fyrir heitan pott.
Gólf: Gólf í baðherbergjum eru flísalögð með 60*60 flísum ljósgráum.Gólf í bílskúr eru flísalögð með 30*30 ljósum flísum. Önnur gólf eru lögð vinilparketi .
Veggir: Veggir eru klæddir með gifsplötum ( sjá byggingarlýsingu) nema í baðherbergi þar eru fibo cresbo plötur í steypulíki.Íbúðin er öll máluð í ljósum lit.
Loft: Loft eru tekinn upp í alrými dúkklædd, í herbergjum er niðurtekin loft klædd með ljósri huntonit loftaklæðningu. Loft á baðherbergi er gifsklætt og málað.
Innihurðir: Eru hvítar meðkarmi (yfirfeldar)
Innréttingar: Eru hvítar sprautulakkaðar frá Ikea, borðplötur eru í dökkum viðarlit. Í svefnherbergi koma fataskápar og í anddyri. Í eldhúsi er klætt með fibo/cresbo plötum milli bekkjarplötu og efriskápa.
Eldunartæki: Span helluborð með fjórum hellum, tveir ofnar og gufugleypir. Gerð tækja Siemens/AEG/Whirlpool eða sambærilegt. Uppþvottavél og ísskápur ekki innifalinn.
Eldhús: Eldhúsvaskur með einnar handar blöndunartæki. Tengimöguleiki við uppþvottavél. Í eldhúsi er loftun með rafmagnsviftu sem blæs út
Baðherbergi: Vegghengt salerni. Handlaug, einnar handar svört blöndunartæki. Niðurfall í gólfi við sturtu með halla í gólfi að niðurfallsrennu með hitastýrðu blöndunartæki með sturtuhaus og handbrúsu. Sturta opin með glerskilvegg annarsvegar. Loftun með rafmagnsviftu sem blæs út.
Nánari upplýsingar í síma 461-2010 eða kasa@kasafasteignir.is
------------
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kasa fasteignir benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald sýslumanns af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati eignar.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.