Þriðjudagur 28. júlí
Fasteignaleitin
Opið hús:05. ágúst kl 17:30-18:00
Skráð 28. júlí 2026

Vefarastræti 17

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær-270
69.8 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
929.799 kr./m2
Fasteignamat
59.650.000 kr.
Brunabótamat
49.300.000 kr.
Mynd af Hrönn Ingólfsdóttir
Hrönn Ingólfsdóttir
Fasteignasali
Byggt 2017
3. hæð
Garður
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2360366
Landnúmer
211650
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Hrönn Ingólfsdóttir lgfs og Prima fasteignir kynna í einkasölu: Einstaklega bjarta, fallega og vel skipulagða tveggja herbergja íbúð með stórum suðursvölum við Vefarastræti 17 í Mosfellsbæ. Sér inngangur af svölum. Íbúðin er 69,8 fm og skiptist þannig: forstofa, eldhús, stofa, eitt svefnherbergi, baðherbergi, ásamt sérgeymslu í kjallara. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@primafasteignir.is

Nánari lýsing eignar: 
Forstofa með góðum skáp.
Bjart og rúmgott hjónaherbergi með fataskápum. 
Björt stofa og þaðan sem gengið út á stórar suður svalir.
Eldhús með rúmgóðri innréttingu, helluborði, ofni og viftu.
Baðherbergið er rúmgott með góðri innréttingu, handklæðaofni og innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Rúmgóð sturta og gluggi á baði.
 
Um er að ræða afar fallega og bjarta íbúð sem er mjög vel staðsett í hverfinu. Skóli og leikskóli í göngufæri og næg bílastæði eru við fjölbýlishúsið. Tvær rafhleðslustöðvar eru við húsið.
Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Hrönn Ingólfsdóttir í síma 692 3344 eða hronn@primafasteignir.is.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/11/202350.700.000 kr.54.000.000 kr.69.8 m2773.638 kr.
10/12/201931.600.000 kr.36.700.000 kr.69.8 m2525.787 kr.
04/08/20172.440.000 kr.31.900.000 kr.69.8 m2457.020 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Jöfursbás 7
Bílastæði
Skoða eignina Jöfursbás 7
Jöfursbás 7
112 Reykjavík
78.3 m2
Fjölbýlishús
312
957 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Hringbraut 107
Skoða eignina Hringbraut 107
Hringbraut 107
101 Reykjavík
51.6 m2
Fjölbýlishús
211
967 þ.kr./m2
49.900.000 kr.
Skoða eignina Grýtubakki 22
Skoða eignina Grýtubakki 22
Grýtubakki 22
109 Reykjavík
71 m2
Fjölbýlishús
212
759 þ.kr./m2
53.900.000 kr.
Skoða eignina Asparskógar 18
Opið hús:05. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Asparskógar 18
Asparskógar 18
300 Akranes
60.3 m2
Fjölbýlishús
211
896 þ.kr./m2
54.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin