Lind Fasteignasala og Auður Magnúsdóttir kynna nýjar og glæsilegar 2–4 herbergja íbúðir í vönduðu og fallegu fjölbýli við Áshamar 50, 221 Hafnarfirði. Öllum íbúðum fylgir merkt stæði og geymsla í lokuðu bílastæðahúsi. Möguleiki verður á tengingu rafhleðslustöðvar við bílastæði. Íbúðirnar afhendast fullbúnar með gólfefnum, innbyggðum ísskáp, frysti og uppþvottavél.
Svansvottuð bygging – umhverfisvæn og heilsusamleg hönnunÁshamar 50 er hannaður og byggður samkvæmt ströngum kröfum Svansins – Norrænu umhverfisvottunarinnar. Slík vottun tryggir að bæði byggingarefni og framkvæmdaferli stuðli að bættri heilsu og vistvænni nýtingu auðlinda.
Byggingin er í Svansvottunarferli, sem felur í sér nákvæma úttekt á öllum þáttum verkefnisins – frá hönnun og efnisvali til loftgæða og orkunotkunar. Lokaniðurstaðan verður vistvæn bygging með minni umhverfisáhrifum og betri lífsgæðum fyrir íbúa.
Byggingaraðili:
Þarfaþing hf.Aðalhönnuður hússins:
Arkís arkitektar ehf.
Allar nánari upplýsingar á heimasíðu verkefnisins: www.ashamar50.isÍbúð 302: 95,4 fm, þriggja herbergja íbúð á 3. hæð. Eigninni fylgir stæði í lokuðu bílastæðahúsi.Nánari lýsing:Anddyri: Parket á gólfi, fataskápur.
Eldhús: Parket á gólfi, gott skápa- og borðpláss. Innréttingin er frá Selós, með matt beige og grábrúnar framhliðar. Borðplötur eru úr 20 mm Quartz-steini með undirlímdum vaski úr stáli. Eldhústæki eru frá AEG. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél fylgja. Skúffur eru með mjúklokunarbúnaði og LED-lýsing er undir efri skápum. Höldur eru svartar griphöldur frá Selós.
Alrými: Parket á gólfi, útgengt út á svalir.
Hjónaherbergi: 12,5fm, parket á gólfi, fataskápur.
Herbergi: 10,0fm, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi: Gráar flísar 60x120 að stærð á gólfi og á veggjum að hluta. Borðplötur eru úr 20mm Quartz steini með undirlímdum vaski. innréttingin er frá Selós, framhliðar eru matt beige, grábrúnar að lit. Upphengt salerni, handklæðaofn og sturta. Hreinlætistæki eru frá Grohe og innihalda hitastýrð og innbyggð blöndunartæki í sturtu.
Þvottahús: Sér þvottahús með innréttingu frá Selós, beige og grábrún að lit, undir þvottavél og þurrkara. Vélrænt loftræstikerfi er í öllum íbúðum, og loftræstisamstæða er staðsett í þvottahúsinu.
Svalir: 7,0fm.
Geymsla: 7,1fm í sameign.
Hjóla- og vagnageymsla: Í sameign.
Bílastæði: Stæði í lokuðu bílastæðahúsi fylgir eigninni. B36.
Inngarður: Inngarður lóðar er skjólgóður suðurgarður sem þjónar íbúum með leiktækjum, stígum og fjölbreyttum grænum svæðum. Hönnun garðsins leggur áherslu á notagildi og fegurð. Gönguleiðir verða hellulagðar og aðstaða verður fyrir útivist og samveru. Leiktæki fyrir börn verða sett upp í samræmi við samþykkt skipulag og hönnun lóðar.
Frekari upplýsingar í skilalýsingu hjá fasteignasala.Kaupandi greiðir 0,3% af væntanlegu brunabótamati þegar því hefur verið úthlutað eigninni.
Nánari upplýsingar veita:
Auður Magnúsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8482666, tölvupóstur audur@fastlind.is.
Helga Pálsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8222123, tölvupóstur helga@fastlind.is.