Fimmtudagur 22. október
Fasteignaleitin
Skráð 22. okt. 2026

Eskiás 3

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
70 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
73.500.000 kr.
Fermetraverð
1.050.000 kr./m2
Brunabótamat
50.600.000 kr.
Byggt 2023
Svalir
Hleðslustöð
Sérinng.
Fasteignanúmer
25236196
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Falleg og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð með sérinngangi á efstu hæð við Eskiás 3b í Garðabæ.
Eignin er 70 fm og eru allir fermetrar innan eignar.
Íbúðin er björt og notaleg, og hönnuð með áherslu á góða nýtingu rýmis og náttúrulega birtu.

Helstu kostir:
  • Sérinngangur
  • 70 fm íbúð á efstu hæð
  • Rúmgóðar svalir sem snúa inn í garð
  • Rafhleðslustöð á sameiginlegu bílastæði
  • Eldhúsinnrétting frá NOBILIA
  • Fataskápar frá Trésmiðju GKS
  • Yfirfelldar innihurðir frá Jeld-Wen Moralt
  • Hreinlætistæki frá Grohe
  • Geymsla innan íbúðar
Nánari lýsing:
Forstofa er með góðum skápum. Eldhús, stofa og borðstofa mynda eitt bjart og notalegt alrými
með útgengi á rúmgóðar svalir sem snúa inn í sameiginlegan garð.
Á svölunum eru útiljós og rafmagnstengill.

Eldhúsið er með ljósri NOBILIA-innréttingu, innfelldum ísskáp með frysti og uppþvottavél.
Ofn er í vinnuhæð og vifta með kolasíu.

Tvö svefnherbergi eru í íbúðinni og eru skápar í báðum herbergjum.

Baðherbergið er með sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara.
Baðherbergið er hannað af Boxen samkvæmt norskum stöðlum.

Geymsla er innan íbúðar. Gólfefni eru parket, að votrýmum undanskildum þar sem eru flísar.

Útveggir eru einangraðir að utan og klæddir með vandaðri ál- og plötuklæðningu, m.a. Alpolic FR 4 mm og Equitone sementsplötum. Allt klæðningarefni og undirkerfi klæðninga kemur frá Málmtækni.

Á lóðinni eru sameiginleg bílastæði og allar íbúðir hafa aðgengi að skjólsælum sameiginlegum inngarði, sem er fallegur og notalegur reitur fyrir íbúa Eskiáss.

Íbúðirnar eru hannaðar með það að markmiði að hámarka náttúrulega birtu og góða nýtingu fermetra, sem skilar sér vel í þessari fallegu og vel skipulögðu íbúð.

Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi í Garðabæ.
Öll helsta þjónusta er í næsta nágrenni, þar á meðal skólar, verslanir og önnur þjónusta. Einnig er stutt í tengibrautir og fallegar göngu- og útivistarleiðir.

Nánari upplýsingar veitir Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Ás fasteignasala

Myndir (39)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Holtsvegur 15
Hleðslustöð
Skoða eignina Holtsvegur 15
Holtsvegur 15
210 Garðabær
90,2 m2
Fjölbýlishús
312
997 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Holtsvegur 15
Hleðslustöð
Skoða eignina Holtsvegur 15
Holtsvegur 15
210 Garðabær
90,2 m2
Fjölbýlishús
312
997 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Urriðaholtsstræti 24
Hleðslustöð
Urriðaholtsstræti 24
210 Garðabær
90,2 m2
Fjölbýlishús
32
886 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Kolagata 1
Skoða eignina Kolagata 1
Kolagata 1
101 Reykjavík
81,8 m2
Fjölbýlishús
322
1216 þ.kr./m2
99.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin