Kaupstaður fasteignasala ehf. kynnir Valshlíð 3 - Íbúð 208.
Hagkvæm og björt 2ja herbergja íbúð á 2. hæð í Hlíðarhorni. Íbúðin snýr inn að inngarði. Birt stærð er 52 fm þar af 3,6 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, gæðaraftækjum frá Siemens, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræstikerfi með varmaendurvinnslu.
Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 1.
Nánari lýsing íbúðar:
Í anddyri
er góður fataskápur. Gengið er beint inn í rúmgott alrými með eldhúsi og stofu með útgengi á rúmgóðar austursvalir sem snúa inn í innri garð. Hvít eldhúsinnrétting, hvítur quartz-steinn á borðum og krómuð blöndunartæki. Innbyggður ísskapur. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi er rúmgott með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur með lýsingu. Krómuð blöndunartæki. Afmörkuð aðstaða á baði fyrir þvottavél og þurrkara.Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0051. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.
Afhending íbúðar: Gert er ráð fyrir fyrstu afhendingu íbúða í Valshlíð 3 í lok mars 2025.
Heimasíða verkefnis:
www.hlidarhorn.is.
Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.
Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins.
Kaupendur greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt þ.e 0,3 % af endanlegu brunabótamati.
Önnur gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa:
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
102 | 51.9 | 62,9 | ||
102 | 52.1 | 63,9 | ||
102 | 52.3 | 63,9 | ||
102 | 50.5 | 59,9 | ||
102 | 52.1 | 63,9 |