Miðvikudagur 10. júní
Fasteignaleitin
Skráð 10. júní 2026

Brekkulækur

Jörð/LóðNorðurland/Hvammstangi-531
1,407.9 m2
30 Herb.
26 Svefnh.
15 Baðherb.
Verð
190.000.000 kr.
Fermetraverð
134.953 kr./m2
Fasteignamat
76.520.000 kr.
Brunabótamat
619.595.000 kr.
Geymsla 81.2m2
Garður
Fasteignanúmer
2133283
Landnúmer
219930
Húsgerð
Jörð/Lóð
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Verönd
Upphitun
Hitaveita
Brekkulækur – glæsileg ferðaþjónustueign með jörðum, húsakosti og verðmætum hlunnindum

Domus Fasteignasala kynnir til sölu jörðina Brekkulæk í Miðfirði Húnaþingi vestra.

Smelltu hér til að skoða myndband fyrir gestahúsið
Smelltu hér til að skoða myndband fyrir hesthúsið
Smelltu hér til að skoða kynningarmyndand um eignina

Um er að ræða einstakt tækifæri til kaupa á vel uppbyggðri ferðaþjónustueign ásamt jörð, fjölbreyttum húsakosti þar á meðal mjög flottu hesthúsi,  rekstrartengdum búnaði, innbúi og verðmætum hlunnindum.

Eignin býður upp á fullbúna aðstöðu fyrir ferðaþjónustu og fylgir með allur sá búnaður sem nauðsynlegur er til áframhaldandi reksturs. Á staðnum er hitaveita og ljósleiðaratenging.

Brekkulækur er vel staðsettur í gróinni sveit á Norðurlandi vestra, á hentugri leið milli Reykjavíkur og Akureyrar. Umhverfið er fallegt og friðsælt og eignin nýtur nálægðar við eina þekktustu laxveiðiá landsins, Miðfjarðará. Ferðaþjónustan hefur byggt upp gott orðspor og hefur myndað sterk tengsl í gegnum árin. 

Seljandi er opinn fyrir því að skoða eignaskipti.

Heimasíða starfseminnar: www.abbi-island.is

Fastanúmer og landeignir

Eignin samanstendur af tveimur fastanúmerum:

Brekkulækur II
Fastanúmer: F213-3283
Landnúmer: L219930

Brekkulækur III
Fastanúmer: F231-7856
Landnúmer: L217343

Brekkulækur II
Á Brekkulæk II er skráð 2,4 hektara jörð ásamt eftirfarandi mannvirkjum:

- 800,9 fm gistihús
- 12,3 fm svefnskáli
- 47,7 fm starfsmannahús

Gistihúsið var upphaflega reist árið 1936, en hefur verið stækkað og mikið endurnýjað, meðal annars á árunum 1993 og 2012. Húsið er í góðu ásigkomulagi og hefur fengið reglulegt viðhald.

Skipulag gistihúss
Í húsinu er meðal annars:

- gestamóttaka
- snyrtingar og baðherbergi
- setustofur
- matsalur
- rúmgott og vel búið eldhús
- fjölbreytt gisti- og íbúðarrými

Herbergjaskipan er eftirfarandi:

- 7 tveggja manna herbergi með sérsnyrtingu
- 3 tveggja manna herbergi með vaski og aðgangi að sameiginlegu baðherbergi
- 6 eins manns herbergi með aðgangi að sameiginlegu baðherbergi
- 1 tveggja herbergja íbúð með eldhúsi og baðherbergi
- 1 fjögurra manna fjölskylduherbergi með sérinngangi og baðherbergi
- 1 þriggja herbergja íbúð
- 1 fimm herbergja íbúð, sem nú er nýtt sem aðsetur eiganda

Húsakostur á Brekkulæk II er almennt í góðu ástandi og hentar vel fyrir áframhaldandi rekstur ferðaþjónustu.

Starfsmannahús
Á jörðinni er einnig 47,7 fm A-bústaður, byggður árið 1989.

Bústaðurinn er nýttur sem starfsmannahús og skiptist í:

- tvö svefnherbergi
- eldhús
- setustofu
- baðherbergi
- Starfsmannahúsið er í nokkuð góðu ástandi.

Brekkulækur III
Á Brekkulæk III er skráð 239,6 hektara jörð ásamt fjölbreyttum húsakosti, ræktuðu landi og verðmætum veiðihlunnindum.

Meðal þess sem fylgir:

- 82,1 fm geymsla, byggð árið 1930
- gömul hlaða
- 24 hektarar af ræktuðu landi
- 4,3% eignarhlutur í Miðfjarðará, sem skilar góðum árlegum tekjum
- 465,8 fm fullbúið hesthús
- upphituð tækjageymsla með snyrtingu og heitu og köldu vatni
- tveggja herbergja íbúð yfir tækjageymslu

Hesthús og tækjageymsla
Á jörðinni er 465,8 fm hesthús, byggt árið 2015. Hesthúsið er vel útbúið og inniheldur:

- 10 eins hests stíur
- 4 tveggja hesta stíur
- tækjageymslu
- snyrtingu
- upphitun
- rennandi heitt og kalt vatn

Yfir tækjageymslunni er um 50 fm tveggja herbergja íbúð með innangengt á milli rýma.

Mannvirki á Brekkulæk III eru almennt í ágætu ástandi.

Veiðihlunnindi og réttindi

Brekkulækur á aðild að Veiðifélagi Miðfjarðarár.
Jörðin nýtur umtalsverðra laxveiðihlunninda tengdum Miðfjarðará, sem hafa skilað góðum tekjum árlega.

Brekkulækur er einnig aðili að Veiðifélagi Arnarvatnsheiðar og Tvídægru. Félagið greiðir ekki út arð til félagsmanna, en tekjur af sölu veiðileyfa eru nýttar til uppbyggingar og viðhalds, svo sem á skálum, vegum og öðrum innviðum á afrétti Miðfirðinga, eða með öðrum hætti sveitarfélaginu og svæðinu til hagsbóta.

Félagsmenn geta, eftir nánara samkomulagi og í samráði við formann veiðifélagsins, fengið heimild til eigin veiða í vötnum á heiðinni.

Samantekt
Brekkulækur er afar áhugaverð eign fyrir þá sem leita að rótgróinni ferðaþjónustueign með miklum húsakosti, fallegu umhverfi, góðri staðsetningu og verðmætum hlunnindum.

Hér sameinast sveitasæla, ferðaþjónusta, landgæði, rekstrarmöguleikar og tekjuskapandi veiðiréttindi á einstaklega eftirsóknarverðum stað á Norðurlandi vestra.

Upplýsingar veita Friðrik Halldór Brynjólfsson löggiltur fasteignasali s 662-8034 domus@domus.is,  Stefán Ólafsson hrl. löggiltur fasteignasali s 891-9425 sol@domus.is og Sigurður Pétur Stefánsson s 698-6971 siggi@domus.is

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Domus Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 64.480 kr.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
09/02/200710.854.000 kr.11.900.000 kr.719.6 m216.536 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignanúmer
2317856
Lóðarmat
674.000 kr.
Fasteignamat samtals
674.000 kr.
Byggt 1989
47.7 m2
Fasteignanúmer
2133283
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
011
Númer eignar
0
Húsmat
11.650.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
11.650.000 kr.
Brunabótamat
29.300.000 kr.
Fasteignanúmer
2317856
Lóðarmat
18.450.000 kr.
Fasteignamat samtals
18.450.000 kr.
Fasteignanúmer
2317856
Lóðarmat
3.390.000 kr.
Fasteignamat samtals
3.390.000 kr.
Lýsing
Ræktað land
81.2 m2
Fasteignanúmer
F2317856
Byggingarefni
Steypt
Húsmat
1.765.000 kr.
Fasteignamat samtals
1.765.000 kr.
Brunabótamat
9.510.000 kr.
Byggt 2015
465.8 m2
Fasteignanúmer
2317856
Húsmat
41.300.000 kr.
Fasteignamat samtals
41.300.000 kr.
Brunabótamat
197.300.000 kr.
Byggt 1982
12.3 m2
Fasteignanúmer
2133283
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
010
Númer eignar
1
Húsmat
674.000 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
674.000 kr.
Brunabótamat
1.935.000 kr.

Myndir (119)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Berustaðir
Skoða eignina Berustaðir
Berustaðir
851 Hella
1,998,000 m2
Jörð/Lóð
0 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Blikastígur 16A
Bílskúr
Opið hús:10. júní kl 17:00-17:30
Skoða eignina Blikastígur 16A
Blikastígur 16A
225 Garðabær
217.6 m2
Einbýlishús
514
758 þ.kr./m2
164.900.000 kr.
Skoða eignina Ystasel 27
Bílskúr
Skoða eignina Ystasel 27
Ystasel 27
109 Reykjavík
334.5 m2
Fjölbýlishús
1248
628 þ.kr./m2
210.000.000 kr.
Skoða eignina Pálmalundur
Skoða eignina Pálmalundur
Pálmalundur
531 Hvammstangi
71.4 m2
Jörð/Lóð
21
559 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin