Lögheimili eignamiðlun og Eggert Ólafsson lgf. kynna glæsilegt og mikið endurnýjað einbýli með tvöföldum innbyggðum bílskúr í Hlíðunum. Eignin, sem er á tveimur hæðum, er samtals 350,3 fm. og var að mikið endurnýjuð á árunum 2008-2009. Lóð og harðviðarverönd var standsett á sama tíma. Bílskúrshurðir endurnýjaðar og gólf málað í bílskúr árið 2019. Innanhússhönnun var í umsjón AVH arkitekta og Hönnu Stínu. Sérsmíðaðar innréttingar frá HBH. Glæsilegur, sérhannaður stigi, á milli hæða, setur einstakan svip á bjart miðrými hússins þar sem hátt er til lofts. Lýsing hússins var hönnuð af LÚMEX. Gólfefni eru m.a. sandsteinsflísar og dökkt plankaparket. Stór harðviðarverönd er afgirt, með potti, sturtuaðstöðu og geymslu. Frábær staðsetning miðsvæðis, þar sem stutt er í Kringluna, verslunarkjarna Suðurvers, heilsugæslu, leikskóla, grunnskóla, menntaskóla og í göngufæri við háskóla, íþróttafélag, Öskjuhlíðina, Klambratún o.fl.
BÓKIÐ EINKASKOÐUN: Eggert Ólafsson, löggiltur fasteignasali, sími: 893 1819, eggert@logheimili.is
Eignin skiptist í: Forstofu, miðrými, 5 herbergi, sjónvarpsstofu/hol, stofu, borðstofu, eldhús, 3 baðherbergi, gang, gestasnyrtingu, þvottahús og tvöfaldan bílskúr.
Nánari lýsing:
Neðri hæð:
Forstofa er með setbekk og góðum fataskáp. Forstofuherbergi er með fataskáp. Inn af forstofu er miðrými hússins með innbyggðum innréttingum, gasarinn, opið inn í stofu og eldhús og útgengt á stóra afgirta harðviðarverönd með potti. Aðal stofa er með gasarinn og opin inn í borðstofu. Innangengt er úr borðstofu í glæsilegt eldhús. Eldhús er sérlega vel útbúið, með góðu skápaplássi, eyju með brúnum marmara, vönduðum Miele-heimilistækjum, þremur ofnum, innbyggðri AEG uppþvottavél, vínkæli og tvöföldum ísskáp. Á gangi er skápur, gestasnyrting, rúmgott herbergi með fataskáp og sér baðherbergi innaf. Þvottaherbergi er með góðu skápaplássi og útgengt í garð. Innangengt er í tvöfaldan bílskúr með endurnýjuðum bílskúrshurðum, máluðu gólfi og geymslu. Parket er á gólfum, nema á forstofu, miðrými, eldhúsi og votrýmum þar sem eru flísar.
Efri hæð:
Frá miðrými neðri hæðar liggur glæsilegur og sérhannaður stigi upp á efri hæð. Opin sjónvarpsstofa/hol er með innréttingu. Baðherbergi er með innréttingu, sturtuklefa og baðkari. Innbyggð lýsing. Tvö herbergi eru með fataskáp. Rúmgóð hjónasvíta er með fataherbergi, sér baðherbergi með sturtu og útgengt á svalir. Parket er á gólfum, nema á votrýmum þar sem eru flísar.
Annað: Samkvæmt fasteignayfirliti HMS er neðri íbúðarhæð 178,1 fm., efri íbúðarhæð 110,3 fm. og bílskúr 61,9 fm., eða samtals 350,3 fm. Nýjar grunn- og útlitsteikningar voru gerðar árið 2009 og skipulagi breytt frá upphaflegri teikningu. Geymsla í bílskúr hefur ekki verið stúkuð af. Gasarinn er opinn inn í miðrými og stofu og því sameininlegur fyrir bæði rými.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Lögheimili eignamiðlun því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4 til 0,8% hjá einstaklingum og 1,6% hjá lögaðilum af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu, sbr. kauptilboð.