Sunnudagur 6. júlí
Fasteignaleitin
Skráð 5. júlí 2025
Deila eign
Deila

Calle de la Creu, Cocentaina

RaðhúsÚtlönd/Spánn/Annað
300 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
15.000.000 kr.
Fermetraverð
50.000 kr./m2
Fasteignamat
0 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Byggt 1946
Þvottahús
Fasteignanúmer
2509999
Húsgerð
Raðhús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
4
Lóð
100
Garðatorg eignamiðlun kynnir. Góð eign í rólegum bæ á Spáni, innan við klukkutíma akstur frá Alicante og Valencia flugvelli. 

Bjart og mjög vel staðsett 300 m2 hús í miðbæ Cocentaina, í gamla bæjarhlutanum. Fimm hæða hús, þrjár fyrstu hæðirnar hafa verið endurnýjaðar að fullu og þakið er í fullkomnu ástandi (nýlega endurnýjað). Endurgerðin hefur verið vandlega unnin: allar pípulagnir, rafmagn ( tvær rafmagnstöflur) og frárennsli frá húsinu eru nýjar, allar innihurðir endurnýjaðar, nýjar gólflísar og parket, nýir hágæða gluggar (Kömmerling) með tvöföldu gleri og velti-og-snúningshurðum, ný mjög sterk öryggisútihurð. 

Gömul smáatriði hafa verið varðveitt, svo sem stiginn, sem er klassískur og gefur eigninni sjarma. Efstu tvær hæðirnar á eftir að endurnýja en búið er að samþykkja teikningar að breytingum sem sameina 4 og 5 hæðina í eina hæð með miklu loftrými (ca 5mtr) og aðgengi út á verönd með fallegu útsýni yfir gamla bæjarhlutann og turninn í Cocentaina.

300 m2 hús í hjarta Cocentaina
4 svefnherbergi
2 baðherbergi, bæði með sturtu
Verönd
Byggt árið 1946
Rafmagnshitun


Bærinn Cocentaina (11.500 íbúar) er mjög vel staðsettur rétt við A7 hraðbrautina sem liggur milli Alicante og Valencia.  Það tekur 40-50 mínútur að aka til Alicante ( 65 km) og rúman klukkutíma (100 km) að aka til Valencia.  Bærinn er rólegur sveitabær með öllu sem til þarf, súpermörkuðum (Carrefour-Mercadona ofl), verslunum, bensínstöðvum, læknastofum og sjúkrahúsi.  

Mikið af góðum veitingastöðum, m.a. L'Escaleta (2* Michelin).  Frábærar gönguleiðir út frá  bænum beint út í náttúruna en Cocentaina er frægt fyrir varðturninn sem setur mark sitt á  svæðið. Verðlag á svæðinu er mun betra en í borgunum í kring og fullt af ódýrum veitingahúsum og börum.

Upplýsingar veitir Ragnar G Þórðarson lögg. fasteignasali sími. 899 5901 eða ragnar@gardatorg.is
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin