Afar smekkleg og mikið endurnýjuð 4 herbergja íbúð í fallegu fjölbýlishúsi við Nóatún í Reykjavík. Vel staðsett í nálægð við alla helstu þjónustu og iðandi mannlíf miðbæjarins í næsta nágrenni.
** 3 svefnherbergi
** Mikið endurnýjuð
** Frábær staðsetning
Nánari upplýsingar veita:Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða hrafnkell@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurBirt stærð skv. HMS er 82,2m2, þar af geymsla 8,7m2.
Eignin skiptist í anddyri/hol, eldhús, stofu, 3 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu í sameign.
Nánari lýsing:
Anddyri/hol tengir saman rými eignarinnar. Parket á gólfi.
Eldhús er með fallegri grárri innréttingu og viðarborðplötu, bakarofni í vinnuhæð, helluborði og viftu. Útgengi út á svalir. Parket á gólfi.
Stofa er rúmgóð og björt. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I er rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi.
Svefnherbergi II er með fataskáp. Parket á gólfi.
Svefnherbergi III er með parket á gólfi.
Baðherbergi var endurnýjað 2021 og er flísalagt í hólf og gólf, með viðarinnréttingu og hvítri borðplötu, handlaug, upphengdu salerni, "walk-in"sturtu.
Geymsla, 8,7m2, er í sameign.
Sameign. Tvö stór þvottahús og tvö stór þurrkherbergi eru á jarðhæð/kjallara, en þrjár íbúðir nota hvort um sig sameiginlega. Einnig er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla í sameign.
2025 voru endurnýjaðir allir gluggar og svalahurð í eigninni.
Athygli er vakin á því að innra skipulagi hefur verið breytt frá samþykktum teikningum.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.