Föstudagur 9. maí
Fasteignaleitin
Skráð 6. maí 2025
Deila eign
Deila

Valshlíð 5

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
111.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
112.900.000 kr.
Fermetraverð
1.011.649 kr./m2
Fasteignamat
10.150.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
JH
Jóhann Halldórsson
Löggiltur fasteignasali
Lyfta
Garður
Aðgengi fatl.
Fasteignanúmer
2532653
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
3
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Byggingarstig
B1 - Byggingarleyfi
Matsstig
U - Leyfi útrunnið

Hlíðarhorn.is kynnir Valshlíð 5, 102 Reykjavík - Íbúð 315.
Íbúðin er staðsett í öðrum áfanga Hlíðarhorns, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðir afhendast fullbúnar sumarið 2025.

Fáðu nánari upplýsingar og gerðu jafnvel tilboð beint á sölusíðu eignarinnar í eCASA.

Glæsileg og rúmgóð 4ja herbergja íbúð á 3. hæð á suðurhlið Hlíðarhorns. Íbúðin er gegnumlýst (norður/suður). Birt stærð er 111,6 fm þar af 8,1 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á svalir, gang, 3 svefnherbergi, baðherbergi og þvottaherbergi. Íbúðin afhendist með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens, vönduðum ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu.Innréttingarþema íbúðar er Mói 1.


Nánari lýsing: Í opnu og rúmgóðu anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í alrými með eldhúsi og stofu/borðstofu. Eldhús er með eyju. Útgengt er á suðursvalir. Taupe grá eldhúsinnrétting, svartur quartz-steinn á borðum og milli skápa og vönduð ítölsk blöndunartæki úr byssubláu stáli. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Mjög rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Gott svefnherbergi með fataskáp og annað minna einnig með fataskáp. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, Taupe grá innrétting og speglaskápur með lýsingu. Blöndunartæki á baði úr byssubláu stáli. Þvottaherbergi er með ljósri innréttingu og gráum steinflísum á gólfi. Vaskur í þvottaherbergi. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 0071. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar munu hafa forgang.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru með sér loftræsikerfi og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Heimasíða verkefnis: www.hlidarhorn.is

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu verkefnisins, ásamt upplýsingum er varða hönnun byggingarinnar.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu aðalverktaka og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.

Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Valshlíð 3
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
111.4 m2
Fjölbýlishús
413
1040 þ.kr./m2
115.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
117.8 m2
Fjölbýlishús
413
1018 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
113.6 m2
Fjölbýlishús
413
1073 þ.kr./m2
121.900.000 kr.
Skoða eignina Valshlíð 3
Skoða eignina Valshlíð 3
Valshlíð 3
102 Reykjavík
116.7 m2
Fjölbýlishús
413
1019 þ.kr./m2
118.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin