NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS
SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3VÍDD (ekki er þörf á frekara forriti til þess)
RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu: Huggulega 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í góðu fjölbýli. Rafhleðslustöð er við bílastæði hússins.
Húsið hefur fengið gott viðhald síðustu ár.
Eignin samanstendur af: Forstofu/holi, eldhúsi, stofu, 2 svefnherbergjum, baðherbergi ásamt þvottahúsi og geymslu.
Nánari lýsing: Forstofa/hol: Er með tvöföldum fataskáp. Harðparket á gólfi. Einnig er sér skápur fyrir framan inngang íbúðar sem tilheyrir íbúðinni.
Eldhús: Er með upprunalegri fallegri retro innréttingu sem búið er að mála hvíta ásamt borðkróki.
Stofa: Er björt með fallegu útsýni ásamt útgangi út á suðvestur svalir. Harðparket á gólfi.
Svalir: Eru fm að stærð og snúa til suðvesturs.
Herbergi I: Er með þreföldum fataskáp með rennihurð. Harðparket á gólfi.
Herbergi II: Er með fataskáp. Harðparketi á gólfi.
Baðherbergi: Er með baðkari með sturtu í, salerni, vaski ásamt skápum. Parket dúkur á gólfi.
Þvottahús: Er virkileg snyrtilegt með góðri aðsöðu, staðsett í kjallara í sameign þar sem hver er með sína þvottavél.
Sérgeymsla er í kjallara hússins, skráð 4,1fm.
Í sameign er hjóla- og vagnageymsla. Fallega gróinn garður með tyrfðum flötum sunnan og vestan megin á lóðinni. Snjóbræðsla er undir stétt fyrir framan hús og malbikuð bílastæði.
Samkvæmt fasteignamati ríkisins er íbúð á 2. hæð, skráð 64,5 fm og geymsla í kjallara skráðar 4,1 fm samtals 68,6fm, ásamt sameignarrými í kjallara, þvottahús o.fl.
Viðhald húss:
2025 - Skipt um dren undir öllu húsinu og brunnar endurnýjaðir
2025 - Skipt um járn á þaki ásamt pappa og rennur
2018-2021 - Hús var múrviðgert og málað
2018-2021 - Skipt um gler ásamt opnanleg fög að hluta í íbúð
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.600 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.