M2 Fasteignasala kynnir eignina Heiðarhvammur 5, 230 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-02, fastanúmer 208-8968 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Heiðarhvammur 5 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 208-8968, birt stærð 62.4 fm.
Snyrtileg 2. herbergja íbúð á 1. hæð.
Stutt í leik.- grunnskóla og aðra þjónustu.
Góð eign sem fyrstu kaup.
Fasteignin er í góðu ástandi að utan og sameign snyrtileg.
Nánari lýsing eignar:
Anddyri og hol, parket á gólfi, fataskápur.
Stofa, parket á gólfi, hurð úr stofu útá baklóð sem snýr í vestur.
Eldhús, parket á gólfi, hvít innrétting.
Hjónaherbergi, parket á gólfi, fataskápur.
Baðherbergi, flísar á gólfi, innrétt, baðkar. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.
Sérgeymsla á jarðhæð fylgir íbúðinni sem er ekki skráð inní stærð hennar.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla.
Allar nánari upplýsingar gefur Sigurður löggiltur fasteignasali í síma 693-2080 eða siggi@fermetri.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. M2 fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga ( 0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut ) og 1,6% fyrir lögaðila.
* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.