Miðvikudagur 29. júlí
Fasteignaleitin
Opið hús:05. ágúst kl 17:00-17:30
Skráð 17. jan. 2023

Vinastræti 12

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Garðabær-210
73.3 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
70.900.000 kr.
Fermetraverð
967.258 kr./m2
Fasteignamat
69.650.000 kr.
Brunabótamat
60.450.000 kr.
Mynd af Skúli E. Kristjánsson Sigurz
Skúli E. Kristjánsson Sigurz
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2019
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Bílastæði
Hleðslustöð
Fasteignanúmer
2503020
Landnúmer
225164
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
05
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegt
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Ofnar.
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging

Fasteignasalan TORG Kynnir: Falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á annarri hæð í Góðu fjölbýlishúsi að Vinastræti 12 í Urriðaholti, Garðabæ. Íbúðin er skráð 73,3 fm. og skiptist í forstofu, svefnherbergi, rúmgott baðherbergi með þvottaaðstöðu og alrými sem rúmar stofu, borðstofu og eldhús. Frá stofu er útgengt út á svalir sem snúa til suðurs. Eigninni fylgir sérmerkt bílastæði með hleðslustöð í lokuðum og upphituðum bílakjallara ásamt sérgeymslu í sameign. Eignin er í fallegu fjölbýlishúsi sem byggt var 2019 af ÞG VERK. Húsið er vel staðsett ofarlega í Urriðarholtinu í grennd Urriðaholtsskóla sem er bæði leik- og grunnskóli. Í hverfinu er veitingahús, kaffihús og sjálfvirk matvöruverslun. Í næsta nágrenni eru fleiri verslanir og þjónusta, golfvöllur, útivistarsvæði í Heiðmörk og Vífilsstaðavatn. Allar nánari upplýsingar veitir Skúli Sigurz löggiltur fasteignasali í síma 869-7014 eða skuli@fstorg.is
​​​​
Nánari lýsing:
Forstofa/anddyri: Komið er inn í anddyri með harðparketi á gólfi og loftháum tvöföldum fataskáp.
Eldhús: Falleg innrétting með góðu skápaplássi er af vandaðri gerð frá GKS, framleiddar af Nobilia í Þýskalandi. Bakaraofn í vinnuhæð, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Eyja með góðu vinnu- og barstólaplássi, helluborði og háf þar fyrir ofan. Harðparketi á gólfi.
Stofa og borðstofa: Stofurnar eru í opnu og björtu alrými með stórum gluggum og með harðparketi á gólfi. Útgengt er á suðursvalir.
Svefnherbergi: Harðparket á gólfi og hvítur fimmfaldur lofthár fataskápur.
Baðherbergi: Grá falleg innrétting með handlaug og speglaskáp með lýsingu. Upphengt salerni og sturta með hertu gleri. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og hluta veggja.
Geymsla: Eigninni fylgir sérgeymsla á jarðhæð.
Garður: Stór og fallegur sameiginlegur garður. Góð aðkoma er að húsinu.
Bílageymsla: Sérmerkt bílastæði er í bílakjallara og búið er að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla.

Umhverfið: Betri staðsetning á höfuðborgarsvæðinu fyrir náttúruunnendur og útivistarfólk er vandfundin. Urriðaholt liggur við friðlandið í Heiðmörk sem er stærsta útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins og er tengt beint við það með göngu- og hjólastígum. Glæsilegir golfvellir, vötn og hæðir umlykja svæðið. Góðar samgönguæðar tengja svo hverfið við alla staði. borgarinnar. Í göngufæri er Urriðaholtsskóli sem starfar á tveimur skólastigum, bæði á leik- og grunnskólastigi.
Samkvæmt vef Garðabæjar: Skipulag Urriðaholts er fyrsta hverfið hér á landi til að hljóta vistvottun samkvæmt vottunarkerfi BREEAM Communities. Urriða­holt er þétt­býli í náinni tengingu við nokkur helstu úti­vistar­svæði höfuð­borgar­svæðis­ins, ósnortna nátt­úru og góðar sam­göngu­æðar sem stytta leiðir í allar áttir.

Hér er um að ræða fallega og vel skipulagða íbúð á góðum stað í Urriðaholti Garðabæ. Stutt er í alla helstu þjónustu, svo sem verslanir og skóla. Allar nánari upplýsingar og bókun skoðunar veitir Skúli Sigurz löggiltur fasteignasali í síma 869-7014 eða skuli@fstorg.is


​​​Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma
í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir
og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
27/02/202352.950.000 kr.62.000.000 kr.73.3 m2845.839 kr.
07/09/20193.400.000 kr.41.200.000 kr.73.3 m2562.073 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2019
Fasteignanúmer
2503020
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
B6
Númer eignar
6
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.350.000 kr.

Myndir (19)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Ásbraut 17
Opið hús:04. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Ásbraut 17
Ásbraut 17
200 Kópavogur
79.2 m2
Fjölbýlishús
312
731 þ.kr./m2
57.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarbraut 11
Bílastæði
Efsta hæð
Opið hús:04. ágúst kl 18:00-18:30
Skoða eignina Hafnarbraut 11
Hafnarbraut 11
200 Kópavogur
93.9 m2
Fjölbýlishús
312
798 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Lautasmári 3
Skoða eignina Lautasmári 3
Lautasmári 3
201 Kópavogur
78.7 m2
Fjölbýlishús
312
812 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Hagamelur 51
Efsta hæð
Opið hús:04. ágúst kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hagamelur 51
Hagamelur 51
107 Reykjavík
69.3 m2
Fjölbýlishús
312
1009 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin