Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu mjög vel skipulagða og afar vel staðsetta 93,7 fermetra 3ja herbergja íbúð með stórum suðvestursvölum á 2. hæð í litlu fjölbýlishúsi við Hrísmóa 10 í Garðabæ. Eignin er staðsett í miðbæ Garðabæjar þaðan sem stutt er í verslanir, þjónustu, skóla, sundlaug, heilsugæslu o.fl. Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning.
Lýsing eignar:
Forstofa / hol, flísalagt og með fataskápum.
Eldhús, korklagt og með góðri borðaðstöðu við glugga með útsýni til norðurs. Eldri sprautulakkaðar innréttingar með tengi fyrir uppþvottavél og flísum á milli skápa.
Stofa, mjög björt, rúmgóð og parketlögð með útgengi á stórar svalir til suðvesturs og virkilega fallegu útsýni að Esjunni, Skarðsheiði og víðar.
Gangur, parketlagður.
Barnaherbergi, korklagt.
Hjónaherbergi, stórt, korklagt, fataskápar á heilum vegg og útgengi á stórar svalir til suðvesturs.
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting og bæði flísalögð sturta og baðkar.
Þvottaherbergi, flísalagt gólf og innrétting með vaski.
Á jarðhæð hússins eru:
Sérgeymsla, sem er 5,7 fermetrar að stærð.
Sameiginleg hjólageymsla, með útgengi á baklóð.
Húsið að utan þarfnast viðgerða.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð í miðbæ Garðabæjar þaðan sem stutt er í leikskóla, skóla, Sundlaug Garðabæjar, íþróttaaðstöðu Stjörnunnar, verslanir, veitingahús, heilsugæslu og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is