Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Einilundur 6d - vel skipulögð 4ra herbergja raðhúsaíbúð á vinsælum stað á Brekkunni - stærð 97,6 m²Eignin skiptist í forstofu, hol, stofu, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, þvottahús og geymslu.
Forstofan er með dökkum flísum á gólfi og fataskáp með rennihurð.
Stofan og hol eru með plast parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á rúmgóðan timbur pall til vesturs, þar er einnig nýlegur geymsluskúr.
Eldhúsið er með flísum á gólfi, ljósri innréttingu með stæði fyrir ísskáp og uppþvottaþvél, tvöfaldum vask og góðum borðkrók.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og veggjum, ljósri innréttingu, walk-in sturtu, wc og handklæðaofni.
Svefnherbergin eru þrjú öll með plast parketi á gólfi og stór fataskápur með rennihurðum er í einu þeirra.
Þvottahúsið er innaf eldhúsi og þar eru dökkar flísar á gólfi og einnig útidyrahurð.
Geymsla er innaf þvottahúsi og er rúmgóð með máluðu gólfi.
Annað:- Mjög vel staðsett eign, stutt er í leik- og grunnskóla sem og KA svæðið
- Nýlegur geymsluskúr er á lóð sem settur var upp 2024
- Nýlegur timburpallir var stækkaður og yfirfarinn 2024
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.