Mánudagur 2. nóvember
Fasteignaleitin
Skráð 1. nóv. 2026

Vesturberg 122

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
104.5 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
67.500.000 kr.
Fermetraverð
645.933 kr./m2
Fasteignamat
62.750.000 kr.
Brunabótamat
52.550.000 kr.
Byggt 1972
2. hæð af 3
Garður
Svalir
Fasteignanúmer
2050486
Landnúmer
112051
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir
Upphitun
Ofnakerfi.
*** MIKIÐ ENDURNÝJUÐ OG AFAR FALLEG 104,5m2 - 4RA HERB. ÍBÚÐ Á ANNARRI HÆÐ ***

Fasteignasalan TORG kynnir eignina Vesturberg 122, 111 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 02-01, fastanúmer 205-0486 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Eignin Vesturberg 122 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 205-0486, birt stærð 104.5m2.
Um er að ræða vel skipulagða 98,2m2 auk 6,3m2 sérgeymslu - fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð á þessum rótgróna fjölskyldustað. 
Sameiginlegur inngangur, teppalagður stigagangur, forstofa, stofa, borðstofa, svalir, tvö barnaherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi, baðherbergi, eldhús og þvottahús. Eigendur hafa endurnýjað mjög mikið á síðustu tveimur til þremur árum. Má þar nefna, eldhús, baðherbergi, þvottahús, gólfefni, veggir, falsloft sett upp með kantljósum og margt fleira. Vel rekið húsfélag.  
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS. 

Nánari lýsing eignar:
Sameiginlegur inngangur, nýlegur myndavéladyrasími. 
Forstofa. Flísar á gólfi. Góður fataskápur með falssökkul sem nýtist sem geymslurými. 
Stofa. Björt og rúmgóð stofa með nýlegu harðparketi. 
Borðstofa. Björt og góð með nýlegu parketi. 
Svalir. Góðar suðursvalir. 
Eldhús. Allt eldhúsið hefur verið endurnýjað með fallegri ljósri innréttingu og dökkum eldhúsveggflísum. Flísar á gólfi. Tengi fyrir uppþvottavél, span-helluborð, bakaraofn og loftgleypir. Falleg blöndunartæki. Eldhúsið er með fallegri halogen lýsingu. Mikið skápapláss.  
Þvottahús. Inn af eldhúsi. Flísalagt í hólf og gólf. Tengi fyrir þvottavélar. Mikið skápapláss og góðar hillur. 
Baðherbergi. Flísalagt í hólf og gólf. Falleg innrétting og spegill með ljósi ásamt nýtískulegum vaski. Upphengt salerni. Handklæðaofn. Baðkar með sturtu með glerveggjum og góðri stýringu. 
Barnaherbergi. Tvö barnaherbergi með parketi og skápum. Parket á gólfi. 
Hjónaherbergi. Rúmgott hjónaherbergi með sérfataherbergi. Parket á gólfi. 
Geymsla. 6,3m2 sérgeymsla í sameign.
Sameign. Vagna- og hjólageymsla.
Umhverfið. Örstutt er í grunnskóla, framhaldsskóla, leikskóla, íþróttamiðstöð, sundlaug, verslanir og aðra þjónustu.  
ALLAR NÁNARI UPPLÝSINGAR VEITIR SVAVAR FRIÐRIKSSON, LGFS, Í SÍMA 623-1717 - SVAVAR@FSTORG.IS. 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/01/202350.450.000 kr.55.900.000 kr.104.5 m2534.928 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG
https://www.fstorg.is

Myndir (36)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Baughamar 5
Opið hús:03. nóv. kl 17:15-17:45
Skoða eignina Baughamar 5
Baughamar 5
221 Hafnarfjörður
95,5 m2
Fjölbýlishús
413
832 þ.kr./m2
79.500.000 kr.
Skoða eignina Vesturberg 36
Á einni hæð
Hleðslustöð
Opið hús:05. nóv. kl 17:30-18:00
Skoða eignina Vesturberg 36
Vesturberg 36
111 Reykjavík
127,9 m2
Raðhús
523
703 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Svöluás 1
Skoða eignina Svöluás 1
Svöluás 1
221 Hafnarfjörður
84,5 m2
Fjölbýlishús
312
827 þ.kr./m2
69.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Bílastæði
Efsta hæð
Skoða eignina Smyrilshlíð 15
Smyrilshlíð 15
102 Reykjavík
89,1 m2
Fjölbýlishús
211
915 þ.kr./m2
81.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin