SAMÞYKKT HEFUR VERIÐ TILBOÐ Í EIGNINA MEÐ HEFÐBUNDNUM FYRIRVARA
VALBORG kynnir í einkasölu: Mánamörk 1, Hveragerði.
Tveggja herbergja íbúð, merkt 203, á efri hæð í lyftuhúsi við verslunarkjarnann Sunnumörk. Suðursvalir með glæsilegu útsýni yfir Ölfus.
Nýleg íbúð, 59,6 m2 að stærð samkvæmt skráningu Þjóðskrár Íslands.
Íbúðin telur forstofu, geymslu, baðherbergi, svefnherbergi og alrými sem í er eldhús-borðstofa-stofa.
Virkilega fallegt útsýni er yfir Ölfus frá svölum íbúðarinnar.
Auðveld fyrstu kaup - hentar einnig vel þeim sem vilja losna við garðslátt. Laus fljótlega.Áætlað fasteignamat 2025 er kr. 43.750.000,-
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.Nánari lýsing:
Gengið er inn í
sameign frá vestuhlið hússins.
Anddyri með stiga og lyftu.
Frá sameign er
gangur að fjórum íbúðum og er þessi næst síðust á ganginum.
Komið er í
forstofu með fatahengi.
Góð
geymsla á vinstri hönd.
Baðherbergi með upphengdu wc, innrétting með handlaug, sturtu og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og veggjum.
Alrými með eldhúsi, borðstofu og stofu.
Eldhús með hvítri innréttingu, helluborði, ofni, viftu og uppþvottavél.
Björt
stofa með gluggum til suðurs. Glæsilegt
útsýni yfir Ölfus.
Svalir, 10,9 m2, meðfram stofu og svefnherbergi.
Rúmgott
svefnherbergi með sexföldum fataskáp.
Gólfefni:
Baðherbergi
flísalagt.
Önnur rými íbúðarinnar með
vínylparketi.
Malbikað bílaplan.
Byggingarár er skráð 2018.
Nánari upplýsingar veita:
Gunnar Biering Agnarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 823-3300, tölvupóstur gunnar@valborgfs.is.
Elínborg María Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, í síma 861-6866, tölvupóstur elinborg@valborgfs.is.Aðrar eignir sem við seljum má sjá
hér.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.