Til sölu fallegur og vel skipulagður sumarbústaður á frábærum stað í Lundi við Vaglaskóg. Höfðabyggð E02 er 58 fm. auk þess fylgir með geymsluskúr á lóð ( óskráður ). Rúmgóð verönd til suðurs og vesturs, með heitum potti, einstakt útsýni til allra átta og stutt í golfvallarsvæðið í Lundi.
Húsið skiptist í stofu, borðstofu og eldhús í einu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, forstofu og geymslurými sem gengið er í af palli við forstofudyr.
Nánari lýsing.
Forstofa, flísar á gólfi, fatahengi og efri skápur. Hol/gangur, parket. Svefnherbergin eru þrjú, parket á gólfum herbergja, fastar kojur eru í tveimur þeirra og fataskápur í hjónaherberginu. Baðherbergi, dúkur á gólfi, flísar á veggjum, góð innrétting og upphengt WC, hornsturta og gluggi með opnanlegu fagi. Eldhús og stofa koma saman í einu rými. Falleg spónlögð eikar innrétting og parket á gólfi. ATH: aukin lofthæð. Borðstofan er milli eldhúss og stofu, fallegir gluggar með miklu útsýni inn Fnjóskadal til suðurs. Við borðstofu er farið út á verönd.
Annað: - Mjög stór verönd er vestan og sunnan við húsið. - Húsið stendur á mjög stórri leigulóð ( 11.826 fm. ) á frábærum stað. - Heitur pottur. - Góð staðsetning, stutt á golfvöllinn. - Geymsla er við inngang hússins. - Uppþvottavél og ísskápur fylgir með. - Innbú getur fylgt með utan persónulega muni seljanda. - Húsið var byggt árið 1995 og var upphaflega í Kjarnaskógi en var flutt í Lundskóg árið 2019. - Húsið stendur á leigulóð frá landeiganda og er lóðarleiga um kr: 180.000. á ári.
Greinilegt sig er í sólpalli, kaupendum er bent á að skoða það vel með fagmönnum fyrir kaupin. Seljandi mun ekki gera neitt varðandi það atriði fyrir söluna. Húsið stendur á stöplum.
Kvöð / kvaðir
Hátalarar, bæði grillið og tvö hangandi ljós í alrými fylgja ekki með en annað innbú getur fylgt með í samráði við seljendur. Allir persónulegir munir fylgja ekki með. ATH: Lokaúttekt hefur ekki fari fram, en seljandi mun sjá til þess að sumarhúsið verði komið á rétt byggingarstig fyrir afhendingu.
EIGNAVER 460-6060
Höfðabyggð, sumarhús í Fnjóskadal.
Til sölu fallegur og vel skipulagður sumarbústaður á frábærum stað í Lundi við Vaglaskóg. Höfðabyggð E02 er 58 fm. auk þess fylgir með geymsluskúr á lóð ( óskráður ). Rúmgóð verönd til suðurs og vesturs, með heitum potti, einstakt útsýni til allra átta og stutt í golfvallarsvæðið í Lundi.
Húsið skiptist í stofu, borðstofu og eldhús í einu rými, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, forstofu og geymslurými sem gengið er í af palli við forstofudyr.
Nánari lýsing.
Forstofa, flísar á gólfi, fatahengi og efri skápur. Hol/gangur, parket. Svefnherbergin eru þrjú, parket á gólfum herbergja, fastar kojur eru í tveimur þeirra og fataskápur í hjónaherberginu. Baðherbergi, dúkur á gólfi, flísar á veggjum, góð innrétting og upphengt WC, hornsturta og gluggi með opnanlegu fagi. Eldhús og stofa koma saman í einu rými. Falleg spónlögð eikar innrétting og parket á gólfi. ATH: aukin lofthæð. Borðstofan er milli eldhúss og stofu, fallegir gluggar með miklu útsýni inn Fnjóskadal til suðurs. Við borðstofu er farið út á verönd.
Annað: - Mjög stór verönd er vestan og sunnan við húsið. - Húsið stendur á mjög stórri leigulóð ( 11.826 fm. ) á frábærum stað. - Heitur pottur. - Góð staðsetning, stutt á golfvöllinn. - Geymsla er við inngang hússins. - Uppþvottavél og ísskápur fylgir með. - Innbú getur fylgt með utan persónulega muni seljanda. - Húsið var byggt árið 1995 og var upphaflega í Kjarnaskógi en var flutt í Lundskóg árið 2019. - Húsið stendur á leigulóð frá landeiganda og er lóðarleiga um kr: 180.000. á ári.
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.