Föstudagur 11. september
Fasteignaleitin
Opið hús:14. sept. kl 17:30-18:00
Skráð 10. sept. 2026

Hálsasel 1

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-109
186.4 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
116.900.000 kr.
Fermetraverð
627.146 kr./m2
Fasteignamat
108.350.000 kr.
Brunabótamat
95.450.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1978
Garður
Svalir
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2054873
Landnúmer
112902
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Allir ofnar í íbúðarrýminu eru nýlegir. Ekki vitað um lagnir.
Raflagnir
2026_Rafmagnstafla endurnýjuð og lekaliðar í húsinu og bílskúr
Frárennslislagnir
Upprunalegt.
Gluggar / Gler
2008_Allt gler í gluggum endurnýjað og einnig í opnanlegum fögum
Þak
Þakjárn endurnýja fyrir um sjö árum.
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suðursvalir.
Upphitun
Hitaveita.
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Raki virðist koma frá flasningu á þaki á einum stað í eldhúsi og í herbergi við stigann að sögn skoðunarmanns
** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA **

Sigrún Gréta og Þórdís Björk hjá RE/MAX kynna endaraðhús að Hálsaseli 1 í Reykjavík.
Húsið er á tveimur hæðum og eru fimm svefnherbergi í húsinu, baðherbergi, gestasalerni o.fl. Nýleg rafdrifin bílskúrshurð og út frá stofu eru stórar S-svalir. Á efri hæð er möguleiki að opna enn frekar á milli eldhúss og stofu. Fjölskylduvænt og rólegt hverfi og í dalnum eru leik- og grunnskólar, íþróttamannvirki ÍR, Seljakirkja o.fl. Falleg tjörn við Hólmasel og gott aðgengi er um hverfið á þægilegum hjóla- og göngustígum.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is og Þórdís Davíðsdóttir í síma 8621914 / thordis@remax.is

Eignin skiptist í forstofu, hol, fimm svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, eldhús, borðstofu, stofu, þvottahús, bílskúr og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 186,4 m2 og þar af er bílskúr 21,7 m2.


*  VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA

**  HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

*** HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI - ÁN HÚSGAGNA

FRAMKVÆMDIR OG ENDURBÆTUR Á EIGNINNI SEM VITAÐ ER UM:
  2026 - Rafmagnstafla endurnýjuð og lekaliðar í húsinu og bílskúr.
  2025-6 - Svalir endurnýjaðar, flísar teknar upp, múrviðgerðir, málaðar
  2026 - Framhlið hússins máluð
  2024 - Stormjárn á opnanlegum fögum yfirfarin og endurnýjað sem þurfti 
  2023 - Ný rafdrifin bílskúrshurð
  2019 - Húsið málað að utan
  2019-2025  - Ný rúllugluggatjöld eða myrkvunartjöld í flesta glugga
  2017 - Nýtt þakjárn og pappi
  2015 - Nýtt teppi á stiga
  2014 - Ný innrétting í baðherbergi á efri hæð.
  2008 - Allt gler í gluggum endurnýjað og einnig í opnanlegum fögum

Nánari lýsing neðri hæðar:
Forstofa
 er rúmgóð með ljósum gólfflísum og viðarfataskáp sem nær upp í loft. Inn af forstofu er eitt herbergi.
Herbergi I er inn af forstofu og vísar glugginn út í garð til suðurs. Parket á gólfi.
Herbergi II er inn af holi neðri hæðar og er það rými opið í dag. Með uppsetningu á hurð er hægt að loka því aftur. Gluggi til norðurs. Parket á gólfi. 
Herbergi III er einnig með glugga út í garð til norðurs. Parket á gólfi. 
Gestasalerni er flísalagt í hólf og gólf. Ljósar flísar. Salerni, handlaug, hilla, spegill og veggfest ljós.
Þvottahús er með hurð út í garð til norðurs og eru þvottasnúrur þar úti á stétt. Grá innrétting í þvottahúsi og ljósgráar gólfflísar. 
Bílskúr er með nýlegri sjálfvirkri bílskúrshurð. Létt og þægileg. Birt stærð bílskúrs er 21,7 m2 og inn af honum er geymsla.
Geymsla  er inn af bílskúr og er innrétting og veggfastar hillur.

Nánari lýsing efri hæðar:
Tröppur
upp á efri hæð eru með nýlegu teppi. Bogadregið stálhandrið. Uppi á stigapalli er afmarkaður skáli. Léttur veggur er á milli hans og stofurýmis.
Stofu og borðstofurýmið er samliggjandi rúmgott og bjart. Gengið er úr stofu út á stórar suðursvalir. Parket á gólfi stofu.
Eldhús er með "U" laga innréttingu. Milli efri og neðri skápa eru hvítar flísar. Stæði fyrir uppþvottavél og ísskáp. Gluggar á tvo vegu og góður borðkrókur undir glugga. Léttur veggur er milli eldhúss og stofu og því möguleiki að opna þar á milli.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Innrétting er á einum vegg. Hvít skúffueining undir handlaug og veggfestur speglaskápur. Baðkar og sér sturtuklefi með glerhurð. Salerni og ofn. Opnanlegt fag.
Herbergi IV er með tvöföldum fataskáp sem nær upp í loft. Parket á gólfi.
Herbergi V er með fataskápum sem fylla einn vegg. Parket á gólfi.

Lóðin er með steyptu bílaplani með snjóbræðslu og hellulögð stétt er framan við hús. Einnig er sunnanmegin við húsið grasflötur og fjölærar plöntur. Girðing erumhverfis hús og bakatil eru stéttar og þvottasnúrur. Leiksvæði nærliggjandi húsa er einnig aftan við hús. 

Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is - Þórdís Davíðsdóttir í síma 8621914 / thordis@remax.is

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
-Þórdís Davíðsdóttir í síma 8621914 eða thordis@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Byggt 1978
21.7 m2
Fasteignanúmer
2054873
Byggingarefni
Steypt

Myndir (54)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hverafold 26
Á einni hæð
Hleðslustöð
a Hverafold 26.jpg
Skoða eignina Hverafold 26
Hverafold 26
112 Reykjavík
200.2 m2
Raðhús
624
749 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Fellahvarf 16
Efsta hæð
Opið hús:15. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Fellahvarf 16
Fellahvarf 16
203 Kópavogur
135.8 m2
Fjölbýlishús
413
934 þ.kr./m2
126.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg - Þaksvalir (602)
Efsta hæð
Opið hús:12. sept. kl 13:00-13:30
Laugaborg.jpg
Laugaborg - Þaksvalir (602)
105 Reykjavík
140.7 m2
Fjölbýlishús
523
1507 þ.kr./m2
212.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg (401)
Hleðslustöð
Opið hús:12. sept. kl 13:00-13:30
Fors , laugaborg .jpg
Skoða eignina Laugaborg (401)
Laugaborg (401)
105 Reykjavík
144.2 m2
Fjölbýlishús
423
1241 þ.kr./m2
179.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin