Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður fasteignasala ehf. kynnir Svarthamrar 56, 112 Reykjavík. Einstaklega góð staðsetning. Sérmerkt bílastæði fylgir. Íbúðin er staðsett í grónu fjölskylduhverfi. Spöngin verslunarmiðstöð er skammt frá og þar er hægt að nálgast helstu þjónustu s.s matvöruverslun og veitingastaði, einnig er stutt á Höfða þar sem má finna matvöru og húsgagnaverslanir. Stutt er að fara niður í Grafarvoginn, Geirsnef og Geldinganes þar sem náttúran skartar sínu fegursta allan ársins hring. Gufunesbær er einnig í göngufæri en þar má finna stórt fjölskyldusvæði með blakvöllum, hjólabrettasvæði, ærslabelg, útigrill aðstöðu og stóru leiksvæði, aðeins þarf að fara yfir eina umferðargötu innan hverfis til að komast á svæðið. Einnig eru fjölmargar hlaupa- og hjólaleiðir sem er mikill kostur.
Forstofa: Sér inngangur, flísar á gólfi nýlegar, fatahengi með hillu fyrir ofan.
Hol: Rúmgott með parketi á gólfum.
Eldhús: Parket – eldri hvít innrétting,
Hjónaherbergi: parket , stór fataskápur,
Barnaherbergin eru tvö með parketi á gólfum, annað herbergið var sett upp árið 2023 með léttum veggjum. Auðvelt að taka niður aftur til að stækka eldhúsið.
Baðherbergi: Flísalagt, innréttingar & baðkar upprunalegt, tengi fyrir þvottavél & þurrkara.
Stofa: Björt og rúmgóð, skyggt gler í gluggum á Austur og Suðurhlið. Pláss fyrir gott borðstofuborð og sjónvarpsaðstöðu, parket er á gólfum. Út frá stofu er lítill sólskáli um 2 fm með flísum á gólfi, með útsýni út á pall og út í garð.
Sólpallur: 33 fm rúmgóður og lítur vel út. Búið að draga rafmagn í pallinn, tvö útiljós og tilbúið fyrir rafmagnstengil í palli. Rafmagnstengill er úti í vegg við glugga. Sól allan daginn.
Geymsla: Í sameign er 6.2 fm , sameiginleg hjóla og vagnageymsla í næsta rými við íbúð.
Rúmgóður garður í sameign, hægt að fara út í garð frá palli. Grunnskólinn Hamraskóli og leikskólinn Klettaborg eru á næstu lóð við húsið. Ekki þarf að fara yfir umferðargötu til að komast í skólana. Grunnskólinn hefur góðan stuðning við börnin með einstaklingsmiðaðri kennslu. Simbað frístundaheimili er í skólanum og býður upp á gæslu fyrir börnin eftir skóla.
Húsið hefur nýlega verið málað, gaflar og sökklar klæddir á síðustu árum.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
22/06/2021 | 38.950.000 kr. | 47.500.000 kr. | 91.6 m2 | 518.558 kr. | Já |
29/07/2015 | 22.150.000 kr. | 28.500.000 kr. | 91.6 m2 | 311.135 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
112 | 90.6 | 74,9 | ||
112 | 97.3 | 71,9 | ||
112 | 72.1 | 71,4 | ||
112 | 71.7 | 70,9 | ||
112 | 98.8 | 73,9 |