Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu mjög fallega, vel skipulagða og alveg endurnýjaða 19,4 fermetra ósamþykkta stúdíóíbúð í risi með gluggum í tvær áttir í fallegu steinhúsi með 4 íbúðum við Nönnugötu í Reykjavík.
Eignin samanstendur af opnu rými sem er eldhús, stofa og svefnaðstaða ásamt baðherbergi með glugga. Sameiginlegt þvottahús með öðrum íbúum hússins er á jarðhæð ásamt geymslu. Skv. upplýsingum frá eiganda var eignir alveg endurnýjuð nýlega. Nýtt eldhús sett upp ásamt baðherbergi og nýtt gólfefni sett á alla eignina.
Lýsing eignar:
Inngangur, sameiginlegur og snyrtilegur með teppi á stigahúsi.
Opið rými sem samanstendur af eldhúsi, stofu og svefnaðstöðu. Húsgögn sem eru í eigninni geta fylgt með ásamt ískáp.
Eldhús, gegnheilt furugólfborð með fallegri Ikea innrétting með viðarborðplötu, spanhelluborði og ískáp.
Stofa, gegnheilt furugólfborð.
Svefnaðstaða, gegnheillt furugólfborð.
Baðherbergi, með glugga, flotað málað gólf, wc, handlaug, handklæðaofn og sturta.
Húsið að utan lítur vel út og hefur verið vel við haldið.
Sameign er mjög snyrtileg og vel umgengin.
Lóðin er falleg, afgirt og með lítilli verönd sem er sameiginleg með öðrum íbúðum hússins.
Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum stað í Þingholtunum í miðborginni.
Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða í netfanginu fastmark@fastmark.is
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignamarkaðurinn ehf. fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.