Til leigu um 560 m² lager-/ iðnaðarhúsnæði við Tunguháls 6 þar sem kælir er til staðar í rýminu. Húsnæðið er laust til afhendingar nú þegar.
Nánari lýsing: Opinn salur, lofthæð í lagerrýminu er frá 3,2 - 3,6 m. en er lægri undir bitum, (um 2,7 m.). Rýmið er að meðtalinni hlutdeild í sameign samtals 560 m². Niðurföll eru í gólfum. Hæð á innkeyrsluhurð er um 3 m. og er hún um ramp. 3ja fasa rafmagn er til staðar. VSK leggst við leigufjárhæðina.
Nánari upplýsingar veitir Helgi Már Karlsson, löggiltur fasteignasali í síma 897 7086 tölvupóstur hmk@jofur.is