Þriðjudagur 30. júní
Fasteignaleitin
Opið hús:06. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 30. júní 2026

Sörlaskjól 64

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vesturbær-107
72.8 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
891.484 kr./m2
Brunabótamat
39.300.000 kr.
Sérinng.
Fasteignanúmer
20266301
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sérinngangur

Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Vel skipulögð og snyrtileg 3ja herbergja, 72,8 fm íbúð á eftirsóttum stað í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin býður upp á tvö rúmgóð svefnherbergi, endurnýjað baðherbergi, bjarta stofu með fallegu sjávarútsýni og bílastæði á lóð hússins. Frábær staðsetning þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun, þjónustu, útivistarsvæði og alla helstu kosti Vesturbæjarins.

Skipulag: Anddyri, gangur, 2 svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi, geymsla og sameiginlegt þvottahús. 

Nánari lýsing:
Anddyri: Sameiginlegur inngangur sem er að mestu leyti eingöngu nýttur af þessari íbúð. Fyrir framan íbúðina er góð forstofa með plássi fyrir yfirhafnir og skó. Þaðan er einnig gengið inn í sameiginlegt þvottahús.
Herbergi 1: Rúmgott með parketi á gólfi, gott skápapláss.
Herbergi 2: Með parketi á gólfi, fataskápur.
Stofa: Rúmgóð stofa með parketi á gólfi og útsýni til sjávar.
Baðherbergi: Smekklega endurnýjað baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Upphengt salerni með innbyggðum vatnskassa, sturta með glerskilrúmi, innrétting undir handlaug og upplýstur spegill.
Eldhús : Snyrtilegt eldhús með parketi á gólfi, góðri innréttingu með skápum bæði ofan og neðan borðplötu, flísum við vask og vinnusvæði, helluborði og ofni. Góð aðstaða fyrir borðkrók.

Annað: Viðhald og endurbætur:
Sameign og utanhúss
  • Lagnir hússins fóðraðar árið 2020.
  • Nýir þrýstijafnarar settir upp árið 2021.
  • Allir gluggar, útidyrahurð og handrið máluð að utan árið 2023.
  • Sameign máluð árið 2019 (samkvæmt upplýsingum seljanda).
  • Nýjar hitaveitulagnir á 3. hæð.
  • Nýjar hitaveitulagnir í gólfi á 1. hæð árið 2022.
  • Nýjar hitaveitulagnir í svefnherbergi á miðhæð árið 2025.
  • Viðgerð á útitröppum við inngang 1. hæðar árið 2022.
  • Viðgerð á þakrennu árið 2023.
  • Tröppur og pallur við inngang steypt upp á nýtt árið 2023.
  • Viðgerð á þakdúk undir svefnherbergisglugga á 3. hæð árið 2025.
  • Skipt um svefnherbergisglugga á 3. hæð árið 2025.
  • Tröppur niður í kjallara lagfærðar árið 2023.
  • Suðurgluggi í stofu á 1. hæð lagfærður árið 2022.
Endurbætur á íbúð
  • Baðherbergi endurnýjað árið 2019.
  • Nýtt gólf lagt á eldhús árið 2024.
  • Parket lagt í öllum herbergjum eftir endurnýjun hitaveitulagna árið 2022
Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða bodvar@fastborg.is
Sjá einnig:
fastborg.is/
Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook
Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
 

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Dísardalur 2F - 0203
Opið hús:01. júlí kl 16:00-16:30
Dísardalur 2F - 0203
260 Reykjanesbær
86.2 m2
Fjölbýlishús
313
720 þ.kr./m2
62.064.000 kr.
Skoða eignina Dísardalur 2B - 0102
Opið hús:01. júlí kl 16:00-16:30
Dísardalur 2B - 0102
260 Reykjanesbær
70.6 m2
Fjölbýlishús
212
814 þ.kr./m2
57.500.000 kr.
Skoða eignina Tjarnabraut 4
Skoða eignina Tjarnabraut 4
Tjarnabraut 4
260 Reykjanesbær
82.5 m2
Fjölbýlishús
413
762 þ.kr./m2
62.900.000 kr.
Skoða eignina Hafnarstræti 100 íbúð 204
Hafnarstræti 100 íbúð 204
600 Akureyri
53.2 m2
Fjölbýlishús
211
750 þ.kr./m2
39.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin