Valborg fasteignasala kynnir: Glæsileg 4ra herbergja íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi við Mosagötu, Garðabæ, ásamt góðum svölum, með svalalokum, sem snúa í suðvestur. Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í bílgeymslu. Íbúðin er sérlega björt, vandaðar innréttingar í eldhúsi, baðherbergi og fataskápum. Eldhús, stofa og borðstofa í rúmgóðu alrými. Góð tæki í eldhúsi, ofn í vinnuhæð, span helluborð og öflugur gufugleypir.
Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, eldhús/borðstofu, hjónaherbergi með góðum fataskápum, tvö barnaherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Samkvæmt HMS er eignin er skráð 122,2 fm þar af geymsla 10,6 fm.
Nánari upplýsingar veitir:
Borga Harðardóttir, lögfræðingur og löggiltur fasteignasali, í síma 821 2412, tölvupóstur borga@valborgfs.is
Nánari lýsing
Forstofa: Góður forstofuskápur, gólf flísalagt
Stofa: Björt stofa. Innfelld ljós í lofti. Útgengt út á rúmlega 11 fm. flísalagðar svalir með svalalokum sem snúa í suðvestur. Fallegt útsýni.
Eldhús: Ljós viðarinnrétting frá HTH með kvartz á borðplötum og á vegg upp að efri skápum, hvítir efriskápar, innfelldur vaskur með einnar handar blöndunartæki. Stæði fyrir uppþvottavél. Eldunareyja með barstólaaðstöðu, helluborði frá AEG, kvartz borðplata og öflugum fjarstýrðum gufugleypi þar fyrir ofan. Siemens ofn í vinnuhæð. Mikið skápapláss og góð vinnuaðstaða.
Hjónaherbergi: Rúmgott hjónaherbergi. Hvítir fataskápar sem ná yfir heilan vegg og alveg upp í loft.
Svefnherbergi I: Bjart með fataskáp.
Svefnherbergi II: Bjart og rúmgott.
Baðherbergi: Hvítar flísar á gólfi og veggjum. Ljós innrétting með góðum hirslum. Baðkar með sturtuaðstöðu, upphengt salerni, handklæðaofn. Flísar á gólfi.
Þvottahús: Innrétting með stálvaski, flísar á gólfi.
Gólfefni í herbergjum, stofu, eldhúsi/borðstofu og gangi eru ljóst eikarharðparket, lagt með fiskibeinamynstri. Í forstofu, baðherbergi og þvottahúsi eru gólf flísalögð.
Geymsla: 10,6 fm geymsla sérmerkt eigninni.
Bílastæði: Sérmerkt íbúðinni í lokaðri bílgeymslu.
Hjóla- og vagnageymsla á sömu hæð.
Sameign er öll hin snyrtilegasta.
Húsið er að mestu steinað að utan, en sléttir fletir filteraðir og málaðir. Gluggar eru hvítmálaðir með álundirlista. Inngangshurð í sameign og innri anddyrishurðir eru rafdrifnar.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í allar áttir og í mikilli nálægð við flottar göngu- og hjólaleiðir. Skóli og leikskóli í göngufæri.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.