Föstudagur 2. október
Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Grensásvegur 1 íb. 701

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Háaleitis- og Bústaðahverfi-108
97.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
139.900.000 kr.
Fermetraverð
1.431.934 kr./m2
Brunabótamat
64.950.000 kr.
Byggt 2025
7. hæð
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
25222201
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir Fasteignir og Anna Sigurðardóttir Löggiltur fasteignasali sími: 898-2017 netfang: anna@aldirfasteignir.is kynna til sölu:

Stórglæsilega og vel skipulagða 3ja herbergja 97,7 fm endaíbúð á 7. hæð (efstu)  með gólfsíðum gluggum, mikilli lofthæð og hita í gólfum. Glæsilegt útsýni og tvennar svalir. Skipulag íbúðarinnar er eftirfarandi: Komið er inn í stóra forstofu og er forstofuherbergi innaf.  Stórt og bjart opið rými sem er eldhús, borðstofa og stofa með góðri lofthæð, gengið út á svalir í suðvestur.  Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf og sturta sem gengið er inní. Úr holi fyrir framan baðherbergi er gengið út á svalir í suður. Þvottahús er einnig innaf holinu. Stórt hjónaherbergi þar sem gert er ráð fyrir fataherbergi innaf. . Baðherbergið með flísalögðum gólfum og veggjum, innfeld blöndunartæki í sturtu, sturtugler, salerni og handklæðaofn. Þvottahús er flísalagt. Innfeld Led lýsing í loftum fylgir.  Íbúðinni fylgir sérgeymsla í kjallara, merkt 0004. Ath. myndir eru úr sýningaríbúð.
Íbúðin afhendist við kaupsamning fullbúin með gólfefnum.

Allar frekari upplýsingar veitir Anna Sigurðardóttir Löggiltur fasteignasali sími: 898-2017 netfang: anna@aldirfasteignir.is
Sjón er sögu ríkari *** Bókaðu einkaskoðun hér *** 


Bílakjallari.
Í bílakjallara eru 183 bílastæði sem verða til útleigu til lengri eða skemmri tíma, en einnig verður hægt að greiða fyrir stæði eftir tímamæli innan dagsins. Inn- og útkeyrsla er Skeifumegin við húsið. Allar greiðslur fyrir stæði fara í gegnum Parka sem gerir allt utanumhald einfalt og auðvelt. 
Í fullbúnum bílakjallara verða hraðhleðslustöðvar fyrir rafbíla.Deilibílar - í bílakjallara er aðgengi að bílastæðum þar sem búið er að koma upp ON hleðslustöðvum fyrir rafmagnsbíla og möguleiki á deilibílum frá Brimborg fyrir íbúa til daglegra nota.

Stutt lýsing á Grensásvegi 1F
Húsið er 76 íbúða vandað 7. hæða fjölbýlishús, hannað af Archus og Rýma arkitektastofum. Archus sá einnig um alla innanhúshönnun og efnisval. Allar íbúðir eru með svölum eða verönd og með stórum gólfsíðum björtum gluggum.   Í hjólageymslu eru stæði fyrir 400 reiðhjól.

Einstök staðsetning við Laugardalinn þar sem er mjög mikið úrval verslanna og þjónustu í Skeifunni, Glæsibæ, Ármúla og víðar. Þar má telja læknisþjónustu, heilsugæslu, matvöruverslanir, sérverslanir, veitingastaði, líkamsrækt, samgöngutengingar og  grunn- og framhaldsskólar í göngufæri.
Heimasíðu verkefnisins má finna hér.

Bókaðu skoðun hjá fasteignasölum eða fáðu frekari upplýsingar:
Anna Sigurðardóttir lögg. fasteignasali, s: 898-2017 eða anna@aldirfasteignir.is
Finnbogi Hilmarsson, lögg. fasteignasali, s: 895-1098 eða finnbogi@aldirfasteignir.is
Gunnlaugur A. Björnsson lögg. fasteignasali s: 617-5161 gab@aldirfasteignir.is
Sigríður Lind Eyglóardóttir, lögg. fasteignasali, 899-4703 eða sigridur@aldirfasteignir.is
 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (17)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg íbúð 509
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 509
105 Reykjavík
112.3 m2
Fjölbýlishús
312
1023 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 416
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 416
105 Reykjavík
94.3 m2
Fjölbýlishús
312
996 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 409
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 409
105 Reykjavík
98.1 m2
Fjölbýlishús
312
989 þ.kr./m2
97.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 316
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 316
105 Reykjavík
94.1 m2
Fjölbýlishús
312
1004 þ.kr./m2
94.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin