Föstudagur 2. október
Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Sæviðarsund 34

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
181.1 m2
6 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
169.900.000 kr.
Fermetraverð
938.156 kr./m2
Brunabótamat
96.650.000 kr.
Byggt 1967
Pallur
Heitur pottur
Á einni hæð
Sérinng.
Fasteignanúmer
20182391
Húsgerð
Raðhús
Inngangur
Sérinngangur

ALDIR Fasteignir og Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s. 6900 820 eða sveinn@aldirfasteignir.is kynna:
Um er að ræða stórglæsilegt 181 fm endaraðhús á einni hæð, teiknað af Kjartani Sveinssyni, á rólegum stað í Sæviðarsundi í nágrenni við Laugardalinn.
Garðurinn er fallega gróinn, og afgirtur að hluta, með skjólgóðri suður verönd, heitum potti og útisturtu.
Eignin hefur verið töluvert mikið endurnýjuð á síðustu árum og hefur það verið gert á vandaðan hátt.  
Stutt er í alla helstu þjónustu, leikskóla, grunnskóla, verslanir, stofnbrautir og góðar samgönguleiðir.

Birtar stærðir skv. Þjóðskrá Íslands:
Húsnæðið er 157.6 fm og innbyggður bílskúr 23.5 fm samtals 181.1 fm að stærð. 

Nánari upplýsingar um eign:
Sveinn Eyland lögg. fasteignasali s. 690 0820 eða sveinn@aldirfasteignir.is


Eignin skiptist í:
Forstofu, miðjurými, eldhús, stofu, borðstofu, þrjú svefnherbergi, aðal baðherbergi, gestabaðherbergi, þvottaherbergi og innbyggðan bílskúr.
Glæsileg afgirt verönd er við suðurhlið hússins með heitum potti og útisturtu.

Nánari lýsing á eign:
Komið er inn í flísalagða forstofu með innbyggðum fataskáp. Til hliðar við forstofu er gestabaðherbergi með flísum á gólfi og veggjum, handklæðaofn á vegg.
Rúmgott svefnherbergi með fataskáp er einnig til hliðar við forstofu.
Úr forstofu er gengið inn í bjart miðjurými með mikilli lofthæð og skemmtilegum þakgluggum sem gefa fallega birtu inn í rýmið.
Í miðjurými er stór og veglegur arinn og sérsmíðaðar bókahillur með innfelldum rennihurðum sem aðskilja miðjurými frá stofu og eldhúsi. Tengt miðjurými eru tvö svefnherbergi og aðal baðherbergi.
Eldhús, stofa og borðstofa renna saman í opið, rúmgott og bjart rými með gluggum á þrjá vegu. Eldhús er með snyrtilegri ljósri ALNO eldhúsinnréttingu með mjög góðu skápaplássi. Flísar eru á vegg milli efri og neðri skápa, steinn í borðplötu og innfelldur vaskur. Bakaraofn frá Miele, gashelluborð, innbyggð uppþvottavél (í vinnuhæð) frá AEG og tvöfaldur kæli- og frystiskápur frá GE. Við eldhús er flísalagður borðkrókur sem rammar rýmið skemmtilega inn.
Inn af eldhúsi er þvottaherbergi með ágætis innréttingu og útgengi til norðurs.
Vegleg sérsmíðuð skápaeining skilur að stofu frá borðstofu og eru gler rennihurðir í borðstofu sem opnast í suðurgarð með stórri verönd. Á verönd er falleg lýsing, heitur pottur og útisturta.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og útgengi á verönd. Mjög rúmgott svefnherbergi með fataskáp er við hlið hjónaherbergis (var upprunalega tvö svefnherbergi og möguleiki að færa í fyrra horf).
Aðal baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum og er innangengt í sturtu með glervegg frá gólfi upp í loft. Innrétting er frá HTH og eru speglaskápar á vegg, steinn í borðplötu og innfeldur vaskur, upphengt salerni og handklæðaofn.
Gólfefni: Brasilískur harðviður lagður í fiskibeinamynstri og flísar. Gólfhiti er á aðal baðherbergi og í borðstofu.
Vönduð innfelld lýsing í húsi. 

Bílskúr er innbyggður með rafdrifinni hurð og er snjóbræðsla í stóru hellulögðu plani framan við hús. 
Eignin hefur fengið mjög gott viðhald og endurnýjun hjá núverandi eigendum og má nálgast ítarlegan lista varðandi endurbætur hjá fasteignasala.

 
-Vegna mikillar sölu undanfarið þá vantar mig allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og ég kem og met eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sveinn Eyland lögg.fasteignasali s: 6900.820 eða sveinn@aldirfasteignir.is


 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (41)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Laugaborg íbúð 506
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 506
105 Reykjavík
56.7 m2
Fjölbýlishús
211
1173 þ.kr./m2
66.500.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 415
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 415
105 Reykjavík
71.3 m2
Fjölbýlishús
312
1088 þ.kr./m2
77.600.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 412
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 412
105 Reykjavík
92.5 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
96.000.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg íbúð 323
Hleðslustöð
Opið hús:04. okt. kl 13:00-13:30
Laugaborg íbúð 323
105 Reykjavík
94 m2
Fjölbýlishús
312
959 þ.kr./m2
90.100.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin