Þriðjudagur 26. maí
Fasteignaleitin
Skráð 26. maí 2026

SPÁNAREIGNIR -San Miguel de Salinas

Nýbygging • EinbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
362 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
145.000.000 kr.
Fermetraverð
400.552 kr./m2
Mynd af Aðalheiður Karlsdóttir
Aðalheiður Karlsdóttir
Löggiltur fasteignasali
http://www.spanareignir.isEignalisti
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
240250526
Landnúmer
0
Húsgerð
Einbýlishús
Númer hæðar
0
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sérinngangur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*FLOTT TVEGGJA HÆÐA EINBÝLISHÚS MEÐ KJALLARA* *EINKASUNDLAUG* *GLÆSILEGT ÚTSÝNI* *FALLEG OG FRIÐSÆL STAÐSETNING*


Vel hönnuð og flott einbýlishús á tveimur hæðum með kjallara. Staðsett í útjaðri San Miguel de Salinas, skemmtilegum spænskum bæ með sál og sjarma, ca. 50 mín. akstur suður af Alicante flugvelli. Í miðbæ San Miguel de Salinas er stutt að fara til að finna fjölbreytt úrval af verslunum og veitingastöðum og örskotsstund tekur einnig að renna inn í Villamartin fyrir enn frekara úrval af þjónustu. Fjölmargir góðir golfvellir á svæðinu; Las Ramblas, Campoamor, Villamartin, Las Colinas, Vistabella, La Finca og ótal fleiri. 

Allar upplýsingar gefa:
Aðalheiður Karlsdóttir, löggiltur fasteignasali. adalheidur@spanareignir.is, 00354 893 2495.
Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali, berta@spanareignir.is, 0034 615 112 869,


LÝSING EIGNAR:
Á neðri hæð er rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi í opnu rými. Eitt svefnherbergi er á hæðinni og jafnframt eitt baðherbergi. Útgengi er úr stofu beint út í garðinn þar sem er að finna einkasundlaug og góða verönd.

Á efri hæð eru tvö svefnherbergi og tvö baðherbergi, og er annað baðherbergið innaf hjónasvítu. Úr svefnherbergjum er útgengt á rúmgóðar svalir með frábæru útsýni.

Í kjallara er rúmgott opið rými sem er tilvalið fyrir sjónvarpsherbergi eða annars konar samverurými. Jafnframt er þar þvottaaðstaða.

Garðurinn er rúmgóður með grænu svæði og verönd sem býður upp á skemmtilega útiveru allt árið, enda skín sólin allt að 300 daga á ári. Einnig er bílastæði á lóð.

Um er að ræða sex hús í jaðri íbúðahverfis með óskertu útsýni. Þau eru 323 - 362 fm að stærð og eru öll á sama verði. 
Ath. að húsin sem eru með kjallara eru ekki með þaksvalir.

Verð 1.000.000 evrur (145.000.000 ISK miðað við gengi 1Evra = 145ISK) + 10% skattur og ca. 3% kostnaður við kaupin. 

Áætlaður afhendingartími er 2026 - 2027.

Öll þjónusta í næsta nágrenni og auk þess er Zenia Boulevard verslunarmiðstöðin í ca. 15 mín. akstursleið og ströndin í ca. 20 mín. akstursleið frá San Miguel de Salinas.

Meira um SAN MIGUEL DE SALINAS:
San Miguel de Salinas er skemmtilegur spænskur bær í aðeins 15 mínútna akstursfjarlægð frá ströndum Mil Palmeras, Campoamor, Cabo Roig, La Zenia, Torrevieja, La Mata, Guardamar o.fl.  Bærinn er umkringdur fallegri sveit þar sem augað lítur fallega sítrus- og möndlurækt og þjóðlendugarð Sierra Escalona rétt við þröskuldinn. Hægt er að ganga og hjóla marga kílómetra meðfram síkinu sem liggur rétt við bæinn.
 
Í San Miguel de Salinas er mikið úrval af skemmtilegum veitingastöðum, bæði spænskum og alþjóðlegum (tæplega 30 í miðbænum einum, sem þýðir að árlegur tapas-viðburður er mjög vinsæll!!). Ef þú ert að leita að áfangastað til að dvelja í fríum, eða stað til að búa á allt árið um kring, þá er San Miguel de Salinas frábær kostur þar sem í bænum hefur þú alla nauðsynlega þjónustu og öll þægindi (góðir grunn- og framhaldsskólar, bankar, heilsugæslustöð sem er opin allan sólarhringinn, apótek, góð aðstaða til íþrótta, td. sundlaug, fótbolta- og frjálsíþróttavöllur, tennisvellir, padelvellir, körfuboltavellir, petanca ofl. Í bænum er líka skemmtileg  blanda af spænskum og alþjóðlegum nágrönnum.
 
Stemmingin er þægileg og afslappandi og verð á börum og veitingastöðum hafa tilhneigingu til að vera lægri en á ströndinni, td. glas af góðu rauðvíni beint úr tunnunni. Vikulegur miðvikudagsmarkaður er frábært tækifæri til að birgja sig upp af staðbundnum ferskum ávöxtum og grænmeti, skinkum, ostum, ólífum, fötum og skóm o.s.frv., áður en þú færð þér drykk og tapas í einni af vinalegu tavernunum í bænum!
 
Það er leigubílaþjónusta á staðnum og almenningsvagnar ganga nokkrum sinnum á dag til Torrevieja, Orihuela og Murcia. Alicante og Murcia flugvöllur eru báðir í um 40-50 mínútna akstursfjarlægð. Netfyrirtækið á staðnum býður upp á áreiðanlegar, háhraða (ljósleiðara) nettengingar, sem auðveldar fólki að vinna í fjarvinnu. San Miguel er staður þar sem þú nýtur hefðbundins spænsks lífstíls og menningar, án þess að fórna þægindum af fyrsta flokks aðstöðu og umhverfi.
San Miguel de Salinas er sérlega vinalegur bær sem við vitum að þú munt elska!

Hér er um að ræða góðar eignir á frábærum og fjölskylduvænum stað.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.

Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar:  www.spanareignir.is

SKOÐUNARFERÐIR:
Við aðstoðum kaupendur við að skipuleggja skoðunarferðir og tökum þátt í kostnaði vegna þeirra, ef af viðskiptum verður.

Kostnaður við kaupin:
10% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp ca. 13%.

Eiginleikar: ný eign, sér garður, kjallari, einkasundlaug, air con, bílastæði,
Svæði: Costa blanca, San Miguel de Salinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (74)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Sunnuflöt 5
Bílskúr
Skoða eignina Sunnuflöt 5
Sunnuflöt 5
210 Garðabær
254 m2
Einbýlishús
744
1059 þ.kr./m2
269.000.000 kr.
Skoða eignina Sogavegur 210
Bílskúr
Skoða eignina Sogavegur 210
Sogavegur 210
108 Reykjavík
268.1 m2
Einbýlishús
1026
540 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Skólavörðustígur 26A
Skólavörðustígur 26A
101 Reykjavík
94.2 m2
Einbýlishús
322
839 þ.kr./m2
79.000.000 kr.
Skoða eignina Naustavör 66
Bílastæði
Skoða eignina Naustavör 66
Naustavör 66
200 Kópavogur
105.9 m2
Fjölbýlishús
312
1227 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin