Miðvikudagur 10. júní
Fasteignaleitin
Skráð 8. nóv. 2024

Týsnes 14A eign 109

Nýbygging • Atvinnuhúsn.Norðurland/Akureyri-603
52.1 m2
Verð
26.200.000 kr.
Fermetraverð
502.879 kr./m2
Fasteignamat
20.200.000 kr.
Brunabótamat
24.900.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2533291
Landnúmer
228762
Húsgerð
Atvinnuhúsn.
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
09
Vatnslagnir
2024/2025
Raflagnir
2024/2025
Frárennslislagnir
2024/2025
Gluggar / Gler
2024/2025
Þak
2024/2025
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
3,13
Upphitun
Hitaveita - Gólfhiti
Inngangur
Sérinngangur
Kvöð / kvaðir
Á eigninni hvílir vsk-kvöð - Auglýst söluverð er tiltekið með vsk-kvöð. 
 
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Týsnes 14a eignarhluti 111

Nýlegt geymsluhúsnæði (byggingarár 2025) á einni hæð með millilofti - skráð stærð 52,1 m³ auk millilofts.


Eignin skiptist í opið rými með lokuðu salerni auk snyrtilegs millilofts með góðri innréttingu.  Salurinn sjálfur er með flotuðu gólfi og góðri rafdrifinni innkeyrsluhurð og gönguhurð.  Salernið er innst í hægra horninu.  Gler er bæði í innkeyrsluhurð og gönguhurð.
Á millilofti er gott parket nema við eldhúsinnréttingu en þar eru flísar.  Innrétting er svört sprautulökkuð með bökunarofni og stæði fyrir ísskáp.

Húsið sjálft er fullfrágengið og með malbikuðu bílaplani. Í plani er snjóbræðsla um 3 metra út frá útveggjum.

  
Helstu mál:
Bilið er 52,10 m² að flatarmáli og með 24,80 m² millilofti. Það eru um 9,5 m frá innkeyrsluhurð og inn í botn og um 5,3 m milli veggja á breiddina. Innkeyrsluhurðin eru 3,20 m á breidd og opnast upp í 3,80 m. Lægsta hæð undir milliloft eru 2,90 m og þá stendur gólf milliloftsins í 3,20 m.

Upplýsingar úr byggingarlýsingu:
Burðarvirki: Burðarvirki hússins eru steinsteyptar undirstöður/gólf ásamt timburvirki (límtré) er kemur í veggi og þak.
Útveggir: Útveggir eru klæddir með 80mm (micro áferð að utan/panill að innan) samlokueiningum með PIR kjarna. Litur að utan er Ral 7024 (dökk grátt) en að innan Ral 9010 (hvítt).
Þak: Þak er klætt með 100/145mm (trapiza) PIR samlokueiningum er festast á límtrésbita. Litur á þakeiningum að utan er Ral 7024 (dökk grátt) en að innan Ral 9010 (hvítt).
Snjógildrur eru á þaki við langhliðar.
Gluggar/hurðir: Gluggar og inngangshurðir eru úr plasti í dökkum lit að utan en hvítt að innan en innkeyrsluhurðir eru í dökkum lit (hand- og rafmagnsopnanlegar). Litur á gluggum/inngangshurðum og innkeyrsluhurðum er Ral 7024 (dökk grátt en hvítt að innan, Ral 9010). Innihurðar eru úr timbri, plastlagðar eða sprautulakkaðar hvítar og þröskuldslausar.
Gler er tvöfalt einangrunargler en í innkeyrsluhurðir koma plastgluggar.
Milliveggir: Allir léttir innveggir (kringum snyrtingu) eru gerðir úr 100mm samlokueiningum. Milliveggir milli rýmisnúmera eru 100mm samlokueiningar með harðpressaðri steinull og eru þær samkv. EI60.
Geymsluhillur eru samkv. R30 og upp á þeir er farið um timburstiga. Þær eru byggðar úr timburbitum/límtré og klæddar að ofan með 22 nótuðum rakav. spónaplötum. Notálag er 2,0kn/m²
Steypt gólf: Einangrun undir gólf er 50mm frauðplast en utan á sökkla kemur 50mm einangrun.
Lagnir: Stofnlagnir fyrir heitt vatn (álpex/plast lagnir - heitt neysluvatn og gólfhita) koma í steypta plötu og að deilikistum í hverjum eignarhluta. Stofnlagnir fyrir kalt neysluvatn (álpex/plast lagnir) eru staðsettar undir einangrun gólfs. Gólfhitakerfi (20mm Pexrör) er í öllum eignarhlutum (nema tæknirými) og eru lagnir staðsettar í gólfsteypu. Stýring gólfhita er gerð með hitanemum og mótorlokum sem staðsettir eru við deilikistur. Hámarkshitastig neysluvatns við töppunarstað sé miðast við 60°C. Við töppunarstaði koma hitastýrð blöndunartæki. Frárennslislagnir í grunni og utanhúss eru PVC plastpípur en innanhúss eru notaðar PP plastpípur. Í öll blautrými komi gólfniðurföll. Ein hitaveitugrind/aflestrarmælir er fyrir allt húsið og er staðsetning mæla í sameiginlegu tæknirými. Deilikistur eru í hverjum eignarhluta og spúlslöngur.
Raflagnir: Aðaltafla rafmagns og einn aflestrarmælir ásamt frádráttarmælum eru staðsett í sameiginlegu tæknirými en greinitöflur koma í hvert sérrými. Lýsing utanhúss kemur á sérmælir sem er staðsettur í sameiginlegu tæknirými.
Brunavarnir: Út- og neyðarlýsing er í öllum eignarhlutum skv. byggingarreglugerð og ISTEN 1838 og ÍSTEN 50172. Neyðarlýsing samkvæmt “opnum svæðum” (0,5 lúx) er í sal.
Handslökkvitæki er í eigninni.
Brunaviðvörunarkerfi er með stjórnstöð staðsetta í sameiginlegu tæknirými. Stjórnstöð er tengd viðurkenndri vaktstöð. Opnanlegir gluggar eru nýttir sem björgunarop (táknað BO á teikningu). Reyklosun er gerð í gegnum op er myndast við opnun innkeyrsluhurða og glugga.
Loftræsing: Loftræsing er almennt gerð í gegnum opnanlega glugga en vélknúin fyrir snyrtingar.

Á eigninni hvílir ekki vsk-kvöð 
 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/03/202514.550.000 kr.23.445.000 kr.52.1 m2450.000 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (6)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stórhöfði 17
Skoða eignina Stórhöfði 17
Stórhöfði 17
110 Reykjavík
100 m2
Atvinnuhúsn.
3 þ.kr./m2
330.000 kr.
Skoða eignina Gjáhella 17
Skoða eignina Gjáhella 17
Gjáhella 17
221 Hafnarfjörður
140.2 m2
Atvinnuhúsn.
11
464 þ.kr./m2
65.000.000 kr.
Skoða eignina Vættagil 6
Bílskúr
Skoða eignina Vættagil 6
Vættagil 6
603 Akureyri
161.9 m2
Parhús
524
660 þ.kr./m2
106.900.000 kr.
Skoða eignina BRÖNS La Zenia
Skoða eignina BRÖNS La Zenia
Bröns La Zenia
Spánn - Costa Blanca
Atvinnuhúsn.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin