Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Kaupstaður fasteignasala kynnir góða 104,4 m2 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð auk 13.2 m2 herbergis í kjallara. Snyrtileg og björt íbúð með glugga á þrjá vegu og tveimur svölum. Öðrum til suðurs og hinum til vesturs. Aukaherbergi í kjallar með aðgengi í salerni. Fordæmi eru fyrir þvi að herbergin séu leigð út og skaffi leigutekjur.
Nýlokið er heildar endunýjun á gluggum, glerjum og svalahurðum í húsinu. Þak er einnig nýlega yfirfarið/lagfært.
Búið er að endurnýja drenlagnir. Steyptir fletir og handrið máluð. Svalagólf lagfærð. Sameign nýmáluð og teppalögð.
Búið er að greiða fyrir allar þessar endurbætur en samt sem áður stendur hússjóður mjög vel.
Eignin getur verið laus fljótlega
Eignin skiptist : Anddyri, stofu/borðstofu, þrjú svefnherbergi og baðherbergi. Í sameign er sér geymsla og gott aukaherbergi.
Nánari lýsing :
Forstofa: Frá sameign er komið í flísalagða forstofu með fatahengi og innbyggðum skáp.
Eldhús: Góð endurnýjuð innrétting. Plastlögð borðplata. Flísalagt milli skápa. Innbyggð uppþvottavél og ísskápur (fylgir). Hægt er að ganga í eldhús frá tveimur stöðum. Borðkrókur við glugga.
Stofa/borðstofa: Mjög rúmgóð, parketlögð og björt með útgang út á suður svalir.
Baðherbergi: Upprunalegt að mestu leyti en snyrtilegt. Flísalagt í hólf og gólf, baðkar með sturtuaðstöðu.
Hjónaherbergi: Bjart og rúmgott með innbyggðum fataskáp. Útgengt á vestur svalir.
Svefnherbergi I: Bjart og gott herbergi. Innbyggður fataskápur.
Svefnherbergi II: Bjart og gott herbergi.
Svalir: Svalir til suðurs út frá stofu og vesturs út frá hjónaherbergi.
Aukaherbergi í kjallara: 13,2 m2 aukaherbergi með glugga. Sameiginlegt salerni er einnig í kjallara. Gæti hentað vel sem vinnuherbergi, fyrir ungling eða til útleigu.
Geymsla: Í kjallara er sér geymsla sem fylgir íbúðinni.
Í sameign í kjallara eru sameiginlegt þvottahús, þurrkherbergi og hjóla/vagnageymsla.
Lóð : Snyrtileg lóð með grasflöt.
Vel skipulögð íbúð í góðu fjölbýlishúsi í gögnufæri við alla helstu þjónustu og útivist. Stutt í grunnskóla.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
03/06/2019 | 39.250.000 kr. | 40.800.000 kr. | 117.6 m2 | 346.938 kr. | Já |
30/08/2011 | 19.450.000 kr. | 21.800.000 kr. | 117.6 m2 | 185.374 kr. | Já |
21/08/2007 | 20.595.000 kr. | 22.700.000 kr. | 117.6 m2 | 193.027 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
110 | 104.5 | 73,9 | ||
110 | 108.3 | 77,9 | ||
110 | 128.6 | 73,9 | ||
110 | 95 | 72,5 | ||
110 | 109.8 | 70,9 |