Föstudagur 2. október
Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Suðurhella 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Hafnarfjörður-221
122.6 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
79.500.000 kr.
Fermetraverð
648.450 kr./m2
Brunabótamat
72.500.000 kr.
Byggt 2024
4. hæð
Svalir
Fasteignanúmer
25287691
Húsgerð
Fjölbýlishús

Aldir Fasteignasala kynnir glæsilega nýbyggingu á frábærum stað í Vallahverfinu í Hafnarfirði, einstakt útsýni yfir hraunbreiðuna og til fjalla.  Um er að ræða fallegar sérlega rúmgóðar íbúðir á mjög hagstæðu fermetraverði. Íbúðirnar afhendast með vönduðum innréttingum frá Axis og gólfefnum frá Birgisson. ATH. Möguleiki á hlutdeildarláni!

HLUTDEILDARLÁN ER Í BOÐI FYRIR ÞESSA ÍBÚÐ - KYNNTU ÞÉR MÁLIÐ!

Nánari lýsing:
Íbúð 401 er 122,6 fm fjögurra herbergja íbúð á 4.hæð og skiptist í anddyri, þrjú rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, eldhús og stofu með útgengi á svalir og útsýni yfir hraunið. Næg bílastæði. Eignin er til afhendingar við undirritun kaupsamnings.

Anddyri: Rúmgóður fataskápur (eik) og parket á gólfi. 
Borð- og setustofa: Í opnu björtu rými með eldhúsi. Á gólfi er parket og frá stofu er útgengt á sér svalir íbúðar sem snúa til suðurs þar sem njóta má fallegs útsýnis yfir hraunið og til fjalla. 
Eldhús: Sérsmíðuð innrétting frá Axis, góð vinnuaðstaða, ofn, helluborð og gufugleypir frá Ormsson og blöndunartæki frá Tengi. 
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi.
Svefnherbergi: Rúmgott með fataskápum (Eik) og parketi á gólfi. 
Baðherbergi: Innréttingar frá Axis, blöndunartæki frá Tengi, vegghengt WC, flísalagður sturtuklefi afmarkaður með glerþili og gluggi með opnanlegu fagi . Á gólfi og á veggjum við sturtu eru flísar frá Birgisson. 
Sameign:  Sérgeymsla íbúðar er á fyrstu hæð sem og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.  

Húsið stendur á lóð sem markast af ósnortnu landi til suðurs og vesturs þar sem fyrir framan hús er fjöldi bílastæða og búið að gera ráð fyrir hleðslustöðvum og á bak við hús er sameiginlegur garður með leiktækjum og sígrænum gróðri.

Fallegar, rúmgóðar og vel skipulagðar íbúðir í nýju klæddu lyftuhúsi þar sem stutt er leik- og grunnskóla, World Class, sundlaug og fallega náttúru. 

Nánari upplýsingar veitir Gunnlaugur A. Björnsson sími 6175161 gab@aldirfasteignir.is
 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Norðurbakki 1
Skoða eignina Norðurbakki 1
Norðurbakki 1
220 Hafnarfjörður
102.3 m2
Fjölbýlishús
3
Tilboð
Skoða eignina Vorbraut 1 (101)
Opið hús:04. okt. kl 14:15-14:45
v1 101.png
Skoða eignina Vorbraut 1 (101)
Vorbraut 1 (101)
210 Garðabær
114.8 m2
Fjölbýlishús
312
1001 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Brekkulækur 1
Efsta hæð
Skoða eignina Brekkulækur 1
Brekkulækur 1
105 Reykjavík
106.4 m2
Fjölbýlishús
412
822 þ.kr./m2
87.500.000 kr.
Skoða eignina Staðarborg 26 B
Hleðslustöð
Skoða eignina Staðarborg 26 B
Staðarborg 26 B
190 Vogar
129.2 m2
Raðhús
514
660 þ.kr./m2
85.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin