Falleg rúmgóð 3ja herbergja íbúð á þriðju hæð í þessu vinsæla fjölbýli við Garðtorg 7 sem er hluti af Garðatorgi í Garðabæ. Eignin er alls 101,5 fm að stærð sem skiptist þannig að íbúðin 98,9 fm, sér geymsla í kjallara 2,6 fm síðan er að auki sér bílastæði merkt B116 í bílakjallara. Eignin getur verið laus fljótlega eftir kaupsamning. Forstofa/hol með parket á gólfi og skápum. Stofa og borðstofa með parket á gólfi, útg. út rúmgóðar yfirbyggðar svalir í suðurátt. Eldhúsið er með góðri eldri innréttingu, háfur, helluborð, stæði f. uppþv.vél, flísar á milli skápa, parket á gólfi. Baðherbergi með flísum á gólfi og vegg, innrétting, sturta, gluggi. Tvö herbergi með parket á gólfi og skápum í hjónaherberginu. Þvottahús með flísum á gólfi, innrétting. Sér geymsla í kjallara. Hjóla- og vagnageymsla. Sér stæði í bílageymslu.
Íbúðin er staðsett í hjarta Garðabæjar, við Garðatorg, þar sem fjölbreytt verslun, þjónusta og ýmis afþreying er í næsta nágrenni. Staðsetningin býður upp á þægilegt og eftirsóknarvert líf þar sem stutt er í allt það helsta sem daglegt líf hefur upp á að bjóða.Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is
og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is