Fasteignasalan Hvammur – 466 1600
Skógarhlíð 12 – Virkilega falleg og vel skipulögð 6–7 herbergja íbúð með bílskúr í þríbýlishúsi í Hörgársveit – stærð 241,8 m²
Eignin er á efri hæð, með sérinngangi, og gengið er inn í hana beint frá bílastæðinu.
Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, eldhús, borðstofu og stofu í opnu alrými, gang, baðherbergi, fjögur barnaherbergi, hjónasvítu með fataherbergi og baðherbergi, tvær geymslur, þvottahús og bílskúr.
Forstofa er með flísum á gólfi og spónlögðum eikarfataskápum.
Eldhús er með vandaðri, sérsmíðaðri, spónlagðri eikarinnréttingu og eyju með svartri steinborðplötu. Mjög gott vinnu- og skápapláss er í eldhúsinu. Loft eru tekin upp og með innfelldri lýsingu, og gluggar eru til þriggja átta. Úr borðstofunni er hurð út á svalir, en einnig er hægt að ganga út á þær úr stofunni. Svalirnar eru skv. teikningum 38,5 m² að stærð.
Stofa og eldhús eru í opnu alrými þar sem loft eru tekin upp og með innfelldri lýsingu. Parket er á gólfi. Stórir gluggar eru til þriggja átta og hurð til suðurs út á svalir.
Sjónvarpshol og gangur eru með parketi á gólfi og innfelldri lýsingu.
Svefnherbergin eru fimm, þar af fjögur barnaherbergi með parketi á gólfum og spónlögðum eikarfataskápum. Stærð barnaherbergjanna er skv. teikningum 10,4–11,8 m². Hjónasvítan er með parketi á gólfi og hurð út á verönd. Inn af hjónaherberginu er fataherbergi með hvítum, opnum skápum og baðherbergi með flísum á gólfi og hluta veggja, hvítri innréttingu, upphengdu WC, walk-in sturtu og opnanlegum glugga.
Aðalbaðherbergi íbúðarinnar er með flísum á gólfi og hluta veggja, spónlagðri eikarinnréttingu með ljósri steinborðplötu, upphengdu WC, hornbaðkari og walk-in sturtu með innfelldum sturtutækjum. Innfelld lýsing er í lofti og opnanlegur gluggi.
Geymslurnar eru tvær. Önnur er inn af eldhúsinu og er merkt sem búr á teikningu. Þar er ekki gólfhiti. Parket er á gólfi og opnanlegur gluggi. Hin geymslan er inn af bílskúrnum, með flísum á gólfi og opnanlegum glugga.
Þvottahús er með flísum á gólfi og ljósri innréttingu með vaski. Þar er einnig aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Gengið er í gegnum þvottahúsið þegar farið er inn í bílskúr.
Bílskúr er skráður 39,4 m² að stærð skv. teikningum og er með flísum á gólfi. Sérinngangur og innkeyrsluhurð með rafdrifnum opnara.
Fyrir framan húsið er góð aðkoma og steypt bílaplan með hitalögnum að stærstum hluta. Lagnirnar eru í lokuðu kerfi. Ekki er hiti í gestastæði.
Steypt verönd er með steyptum skjólveggjum og heitum potti. Hitalagnir eru í gönguleið að pottinum. Pottastýring er nýleg.
Annað
* Gólfhiti er í öllum rýmum nema geymslu innan íbúðar.
* Sérafnotaréttur eignarinnar á lóðinni er meðfram vesturhliðinni. Sjá nánar í eignaskiptasamningi.
* Steyptar svalir með skemmtilegu útsýni bæði inn og út fjörðinn.
* Árið 2025 voru steyptir fletir utanhúss málaðir.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.