Hólmar Björn Sigþórsson löggiltur fasteignasali og Helgafell fasteignasala kynna í einkasölu Sambyggð 6, íbúð 303, 815 Þorlákshöfn: Um er að ræða bjarta og vel skipulagða
4RA HERBERGJA íbúð á 3 hæð í góðu fjölbýlishúsi. Birt stærð samkvæmt fasteignaskrá HMS er 78,4 fm. Geymsla í sameign er ca. 4,48 fm. og er ekki inn í heildarfermetrafjöld eignarinnar.
Heildarstærð eignarinnar er því ca. 82.88 fm. Búið er að endurnýja og lagfæra húsið mikið að innan sem utan. SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT STRAXEignin skiptist í forstofu, í alrými er stofa / borðstofu /eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi og geymslu sem staðsett er á jarðhæð. Í sameign er sameiginlegt þvottahús, vagna- og hjólageymsla.
Nánari lýsing: Forstofa: Komið er inn í forstofu með innbyggðum hvítum fataskáp, parket gólfi.
Eldhús: Í alrými með stofu / borðstofu.
Ný hvít Ikea innrétting, ísskápur og uppþvottavél sem fylgja með, bakaraofn, helluborð, háfur, plötur milli skápa, parket á gólfi.
Eldhúsið var flutt inn í stofu og endurnýjað. Stofa / borðstofa: Í alrými, útgengt er út á ca. 6,12 fm. vestursvalir, parket á gólfi.
Hjónaherbergi: Rúmgott parketlagt herbergi, innfelldur fataskápur, parket á gólfi.
Svefnherbergi 2: Gott svefnherbergi með hvítum fataskáp, parket á gólfi.
Svefnherbergi 3: Gott svefnherbergi, parket á gólfi.
Í þessu rými var eldhúsið sem flutt var inn í stofu (alrými). Baðherbergi: Með góðri innréttingu, sturtuklefa, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísalagt í hólf og gólf.
Geymsla: Í sameign er rúmgóð sérgeymsla með hillum.
Sameign: Í sameign er sameiginlegt þvottahús, vagna- og hjólageymsla.
Húsið: Sambyggð 6 - 8 er byggð 1990. Í Sambyggð 6 eru átta íbúðir. Búið er að endurnýja húsið mikið að utan m.a. múrviðgerðir og málun á húsinu, skipt var um járn á þaki og rennur, endurnýja gluggar og gler. Vatnslagnir endurnýjaðar í húsinu 2026.
Lóð: Sameiginleg gróin lóð, stétt að húsi og malbikuð bílastæði.
Staðsetning: Smellið hér.Að sögn eiganda er búið að endurnýja eftirfarandi í eigninni og húsinu:
Að innan:
* Vatnslagnir endurnýjaðar 2026.
* Færa og endurnýja eldhús s.s. innréttingu og eldhústæki.
* Nýr fataskápur í svefnherbergi og nýr fataskápur í forstofu.
* Nýjar innihurðir.
* Nýbúið er að sparsla og mála eignina að innan.
* Nýlegt parket/parketlistar á forstofu, stofu og svefnherbergjum.
Að utan: * Múrviðgerðir og málun á húsinu 2023.
* Nýir gluggar og gler 2021.
* Skipt var um járn á þaki og rennur 2017.
GÓÐ EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA - TILVALIN FYRSTU KAUP - ER VEL STAÐSETT, STUTT ER Í SKÓLA, LEIKSKÓLA, ÍÞRÓTTAAÐSTÖÐU OG VERSLANIR.
Nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Hólmar Björn Sigþórsson, löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala í síma 893 3276 eða holmar@helgafellfasteignasala.is.
Þorlákshöfn:Þorlákshöfn er frábær staður til að búa sér notalegt heimili og ala upp börn. Vinalegur og barnvænn bær í nálægð við aðra þéttbýliskjarna. Í dag er öll þjónusta við barnafólk og fjölskyldur í Þorlákshöfn til fyrirmyndar. Stuttar vegalengdir einfalda allar samgöngur og börnin geta gengið örugg í skóla og tómstundastarf. Skólarnir eru eitt af trompum bæjarins þar sem stutt er vel við bakið á þeim sem þess þurfa. Rúmgóður og vel búinn grunnskóli með persónulegum samskiptum á milli heimilis og skóla. Leikskólinn Bergheimar er fimm deilda leikskóli fyrir tveggja til sex ára börn og í Vesturbyggð nýju hverfi er verið að byggja leikskólann Hraunheima. Öll íþróttaaðstaða í Þorlákshöfn er mjög góð og ákaflega vel nýtt af bæjarbúum. Margir nýir íbúar hafa nefnt að í stað þess að festa kaup á íbúð á höfuðborgarsvæðinu hafi verið hægt að fá íbúðarhús í Þorlákshöfn og búa fjölskyldunni stærra og rúmbetra heimili í barnvænu umhverfi.