Þriðjudagur 13. október
Fasteignaleitin
Opið hús:19. okt. kl 16:15-17:00
Skráð 30. ágúst 2022

Dalsgerði 2D

RaðhúsNorðurland/Akureyri-600
151.8 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
93.900.000 kr.
Fermetraverð
618.577 kr./m2
Fasteignamat
82.050.000 kr.
Brunabótamat
84.200.000 kr.
Mynd af Ólafur Már Þórisson
Ólafur Már Þórisson
Löggildur fasteignasali
Byggt 1972
Garður
Svalir
Pallur
Hleðslustöð
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2145577
Landnúmer
147484
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Inntak fyrir heitt og kalt vatn endurnýjaðar
Frárennslislagnir
Óvitað, talið í lagi
Gluggar / Gler
Móða í einhverjum glerjum
Þak
Í lagi svo vitað sé
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Verönd og svalir til vesturs
Upphitun
Hitaveita gólfhiti á efri hæð og ofnakerfi á neðri þar sem eru eirlagnir
Inngangur
Margir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Fasteignasalan Byggð 464-9955 - Einkasala

Dalsgerði 2 D


Mjög skemmtileg og rúmgóð 5-6 herbergja raðhúsaíbúð á tveimur hæðum á mjög vinsælum stað á efri Brekku. Eignin hefur verið töluvert endurnýjuð bæði að innan og utan, sérstaklega veröndin og bílastæði vestan við hús. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslun, þjónustu og íþróttasvæði KA. 

Eignin skiptist í tvær jafn stórar hæðir, með tveimur forstofum, fjórum svefnherbergjum, stofu, eldhúsi, tveimur baðherbergjum og þvottahúsi. 

Efri hæð: 
Forstofa er með ljósar flísar á gólfi og opnu fatahengi.
Eldhús er með parket á gólfi, hvít sprautaða eldhúsinnréttingu, innbyggða uppþvottavél, stæði fyrir tvöfaldan ísskáp og eldhúskrók. Eldhúsi var breytt af núverandi eigendum, opnaður veggur að stiga til hálfs og styttur veggurinn við forstofu sem opnar allt rýmið og hleypir birtu betur inn.
Stofa og hol er með parket á gólfi. Stofa er mjög rúmgóð en hún hefur verið stækkuð á kostnað svefnherbergis sem var í austurenda hennar. Hægt er að breyta því aftur og er þá gengið inn í svefnherbergið við hlið baðherbergis. Afar bjart rými þar sem gluggar eru bæði til austurs og vesturs. 
Baðherbergi hefur verið endurnýjað og er flísalagt í hólf og gólf. Þar er baðkar með sturtutækjum, handklæðaofn, góð innrétting í kringum vask og upphengt salerni. 
Svefnherbergið á hæðinni er með parket á gólfi og fataskáp.

Neðri hæð: 
Forstofa neðri hæðar er með flísar á gólfi, veggjaþiljur á einum vegg og opnu fatahengi. 
Gangur er með parket á gólfi og er gengið niður á gang af efri hæð um steyptan parketlagðan stiga. Undir stiga er opið geymslurými.
Svefnherbergi hæðarinnar eru þrjú, öll mjög rúmgóð með parket á gólfi og tvö af þeim með góðum skápum. Inn af hjónaherbergi er fataherbergi.
Baðherbergi hæðarinnar er með flísar á gólfi og veggjum að mestu, sturtu, vask með skápaplássi yfir upphengdu salerni. 
Þvottahús, þar er gólf lakkað, innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara og þá er búið að opna út úr rýminu á verönd fyrir framan og vestan við hús þar sem gert er ráð fyrir heitum potti.

Verönd fyrir framan eignina verið endurnýjuð og steypt gryfja með timbur skjólveggjum, þar sem gert er ráð fyrir heitum potti, lagnir lagðar að og í frárennsli. Þá er gert ráð fyrir hita undir hellum í stærstum hluta þess endurnýjaða auk þess sem gert er ráð fyrir hita í bílaplani sem er malbikað, á eftir að tengja. Hleðslustöð er við bílaplan með stærri kappli og inntakslagnir fyrir heitt og kalt vatn voru einnig endurnýjaðar að stofni á sama tíma. 

Á baklóð sem snýr til austurs er sólpallur og perlumöl í lóð auk tveggja geymsluskúra, annar 15 fm. sem er einangraður og með tvöfaldri hurð. Hinn er minni og óeinangraður.  

Annað:
**Eignin getur verið laus í janúar**

-Gólfhiti á efri hæð
-Baðherbergi efri hæðar endurnýjað 2019
-Innihurðir endurnýjaðar á efri hæð
-Hluti af eldhúsinnréttingu sérsmíðuð, aðrir frontar sprautaðir, ný bekkplata og eldhúsborð sérsmíðað úr sama efni 
-Glæsilegt útsýni til vesturs að Hlíðarfjalli er úr eldhúsi og stofu.  
-Ljósleiðari
-Þrír inngangar í íbúðina (tveir að vestan, aðalinngangur og inngangur í þvottahús um gryfju og einn til austur)
-Svalir til vesturs lengdar út
-Húsið málað að utan 2021
-Malbikað bílastæði fyrir allt að þrjá bíla framan við hús og sameiginleg bílastæði við norður enda.
-Afar lítil umhirða á lóð, ekkert gras
-Botnlangagata
-Frábært útsýni sérstaklega til vesturs

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:  
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila.    (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga m.v. að lágmarki 50% eignarhlut).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar -almennt 0,5-1,0% af höfuðstól skuldabréfs (nánari upplýsingar m.a. á heimasíðum lánastofnanna).
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð. 


Frekari upplýsingar:
olafur@byggd.is
halla@byggd.is
bjorn@byggd.is
greta@byggd.is

Skipagötu 16 á 2. hæð.
S:464 9955 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
24/02/202359.200.000 kr.71.000.000 kr.151.8 m2467.720 kr.Já
26/04/201629.500.000 kr.31.300.000 kr.151.8 m2206.192 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (48)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Bílastæði
Á einni hæð
SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf
Spánn - Costa Blanca
162 m2
Parhús
423
408 þ.kr./m2
66.100.000 kr.
Skoða eignina Barðastaðir 7
Bílskúr
Skoða eignina Barðastaðir 7
Barðastaðir 7
112 Reykjavík
140,6 m2
Fjölbýlishús
412
703 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Skoða eignina Nýbýlavegur 104
Bílskúr
Nýbýlavegur 104
200 Kópavogur
136,8 m2
Fjölbýlishús
42
768 þ.kr./m2
105.000.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Villamartin
SPÁNAREIGNIR - Villamartin
Spánn - Costa Blanca
150 m2
Fjölbýlishús
322
369 þ.kr./m2
55.300.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin