BYR fasteignasala kynnir í einkasölu BLEIKSÁRHLÍÐ 16, 735 Eskifjörður.
Fjögurra herbergja íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi, gengið inn beint frá götu, útsýni. Smellið hér fyrir staðsetningu.Húsið er byggt árið 1968, íbúð 109.9 m² samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, skáli, stofa og borðstofa, eldhúsi, þrjú herbergi, baðherbergi, geymsla/búr og þvottahús.
Nánari upplýsingar hjá BYR fasteignasölu | byr@byrfasteignasala.is | 471 2858 |Nánari lýsing: Anddyri, flísar á gólfi, opið fatahengi með hillu.
Skáli, parket á gólfi, þaðan er innangengt í önnur rými hússins, er í dag nýtt sem skrifstofa.
Stofa og borðstofa, parket á gólfi, útsýni.
Eldhús, harðparket á gólfi, upprunaleg innrétting, eldavél og vifta, gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu, borðkrókur.
Lúga á vegg yfir í þvottahús.
Herbergi I, hjónaherbergi, fjórfaldur fataskápur, parket á gólfi.
Herbergi II, parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Herbergi III, parket á gólfi, tvöfaldur fataskápur.
Baðherbergi, flísalagt í hólf og gólf, vaskinnrétting og skápar, salerni og sturtuklefi, gluggi.
Geymsla/búr, harðparket á gólfi, innangengt frá eldhúsi, skápar á vegg, gluggi, lúga upp á loft (lúga er skrúfuð föst).
Þvottahús, málað gólf, skolvaskur, pláss fyrir tvær vélar, gluggar, innangengt er í þvottahús úr geymslu/búri, útgengt út á timburverönd.
Ticino rofar og tenglar. Sameiginlegt tæknirými/inntök er á neðri hæð.
Bleiksárhlíð 16 er tvíbýlishús á tveimur hæðum, steypt og hlaðið (samkvæmt skráningu HMS). Húsið er múrað og málað að utan,
þak er einhalla klætt bárujárni. Timbur gluggar og hurðar, búið að skipta um gler í nokkrum gluggum. Lóð er sameiginleg, timburverönd með skjólveggjum er framan við húsið, malarbílastæði er framan við húsið.
Lóð er 702,0 m² leigulóð í eigu Fjarðabyggðar.
Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:
Fasteignanúmer 2517-0099. Bleiksárhlíð 16, Fjarðabyggð.Stærð: Íbúð á hæð 109.9 m².
Brunabótamat: 49.250.000 kr.
Fasteignamat: 31.050.000 kr.
Byggingarár: 1968.
Byggingarefni: Steypt+hlaðið