Þriðjudagur 17. nóvember
Fasteignaleitin
Skráð 17. nóv. 2026

Gullsmári 6

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
80.6 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
66.900.000 kr.
Fermetraverð
830.025 kr./m2
Brunabótamat
43.200.000 kr.
Byggt 1995
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
22212891
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir fasteignasala kynnir í einkasölu:  Gullsmári 6 - vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á jarðhæð með sér sólpalli á góðum stað í Kópavogi. Merkt bílastæði fylgir. Íbúðin er laus til afhendingar við kaupsamning. 

Allar frekari upplýsingar veitir Finnbogi Hilmarsson fasteignasali, finnbogi@aldirfasteignir.is / 895-1098.


Komið er inn á forstofu með parket á gólfi og fataskáp.  Björt rúmgóð stofa með parketi á gólfi, útgengt er út úr stofunni á aflokaðan sérsólpall. Opið er úr stofunni inn í eldhúsið. Stór viðarinnrétting er í eldhúsinu, korkflísar á gólfi og tengi fyrir uppþvottavél.  Ágætur borðkrókur er í eldhúsinu. Rúmgott hjónaherbergi með korkflísum á gólfi og stórum fastaskápum. Barnaherbergi með korkflísum á gólfi og fataskáp.  Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, baðkar/sturta, ágæt innrétting og skápur. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er á baðherberginu. Í sameign er sérgeymsla íbúðarinnar ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymsla.

Gullsmári í Kópavogi er eftirsóttur búsetukostur á góðum stað þar sem þægindi, þjónusta og notalegt nærumhverfi fara saman. Staðsetningin býður upp á nálægð við fjölbreytta verslun, veitingastaða og þjónustu í Smáralindinni, góðar samgöngur og falleg útivistarsvæði. Hér er því kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja njóta þægilegs og áhyggjuminna hversdagslífs í rólegu og grónu umhverfi, þar sem flest það sem þarf til daglegs lífs er innan seilingar. Eign sem vert er að skoða fyrir þá sem kunna að meta góða staðsetningu og lífsgæði. Íbúðin getur verið laus við kaupsamning. 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (22)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hafnarbraut 12G
Bílastæði
Skoða eignina Hafnarbraut 12G
Hafnarbraut 12G
200 Kópavogur
80,2 m2
Fjölbýlishús
312
921 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 17 (305)
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-17:30
Hus B4 - Kvold gardur - bekkir - 25 mars 2026.jpg
Breiðhöfði 17 (305)
110 Reykjavík
100,4 m2
Fjölbýlishús
312
1045 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 19 (003)
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-17:30
21.jpg
Breiðhöfði 19 (003)
110 Reykjavík
89 m2
Fjölbýlishús
312
1010 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Skoða eignina Breiðhöfði 15 (401)
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-17:30
16.jpg
Breiðhöfði 15 (401)
110 Reykjavík
80,3 m2
Fjölbýlishús
211
1032 þ.kr./m2
82.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin