Föstudagur 21. ágúst
Fasteignaleitin
Skráð 21. ágúst 2026

Háholt 4

ParhúsSuðurland/Laugarvatn-840
132.5 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
Verð
68.000.000 kr.
Fermetraverð
513.208 kr./m2
Fasteignamat
64.400.000 kr.
Brunabótamat
71.150.000 kr.
Byggt 2022
Garður
Pallur
Heitur pottur
Bílskúr
Fasteignanúmer
2517710
Landnúmer
194910
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
gott - nýtt 2022
Raflagnir
gott - nýtt 2022
Frárennslislagnir
gott - nýtt 2022
Gluggar / Gler
gott - nýtt 2022
Þak
gott - nýtt 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
pallur
Upphitun
hitaveita
Fallegt og vel skipulagt parhús með þremur svefnherbergjum, rúmgóðum bílskúr og afgirtum garði.
LÓB fasteignir kynna fallegt og vel skipulagt 132,5 m² parhús. Eignin skiptist í 89,3 m² íbúð og 43,2 m² bílskúrsrými. Í íbúðinni eru þrjú svefnherbergi en auk þess er um 10 m² skráð geymsla inn af bílskúr sem nú er nýtt sem svefnherbergi. Eignin getur því hentað sérstaklega vel fjölskyldu sem þarf fjögur svefnrými.
Húsið er bjart og smekklegt með samliggjandi eldhúsi og stofu, góðu skápaplássi og snyrtilegum innréttingum. Úr alrými er gengið út á rúmgóðan, um 50 m² timburpall með heitum potti. Garðurinn er afgirtur og við húsið er stórt bílaplan með stæði fyrir allt að fjóra bíla.
Nánari lýsing:
Gengið er inn í parketlagt anddyri og þaðan inn á gang sem tengir saman helstu rými eignarinnar.
Eldhús og stofa mynda bjart og opið alrými. Í eldhúsi er hvít IKEA-innrétting með góðu skápa- og vinnuplássi og stórir gluggar hleypa inn góðri birtu. Útgengt er úr alrými á timburpall og þaðan áfram út í garð.
Svefnherbergin eru þrjú, öll parketlögð og með IKEA-fataskápum. Hjónaherbergið er um 11,8 m² og þar eru rúmgóðir tvöfaldir PAX-fataskápar.
Baðherbergið er smekklega innréttað og flísalagt að stórum hluta. Þar er upphengt salerni, sturtuaðstaða með glerþili, handlaug með innréttingu og upplýstur spegill.
Þvottahúsið er flísalagt og vel nýtt með IKEA-innréttingum, vinnuborði, vaski og háum skápum sem veita gott geymslupláss.
Bílskúrinn sjálfur er um 27,8 m². Á gólfi er epoxy-húð beint á steypta plötu og gönguhurð er á bílskúrshurð. Inn af bílskúrnum er um 10 m² skráð geymsla sem nú er innréttuð og nýtt sem svefnherbergi. Úr rýminu er útgengt í garð.
Við húsið hefur verið útbúinn rúmgóður, um 50 m² timburpallur með heitum potti og góðri aðstöðu fyrir útihúsgögn og grill. 
Garðurinn er afgirtur og áætlaður um 200–250 m². Þar er góð grasflöt og leikkastali sem getur fylgt eigninni ef óskað er. Framan við húsið er stórt malarlagt bílaplan með stæði fyrir allt að fjóra bíla ásamt timburskýli fyrir fjórar sorptunnur.
Samkvæmt upplýsingum seljanda stendur húsið á steyptri plötu og var jarðvegspúði grafinn niður á fast undirlag.

Vinsamlegast hafið samband við Kristófer til þess að bóka skoðun á eigninni. kristo@olafur.is - 6956134

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.
Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 55.000 auk vsk. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamati, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

Allar nánari upplýsingar hjá Lögmannsstofu Ólafs Björnssonar s. 416-2220 – Eyravegi 15, 800 Selfoss
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
19/08/20224.120.000 kr.45.500.000 kr.132.5 m2343.396 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 2022
43.2 m2
Fasteignanúmer
2517710
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Númer eignar
04
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.700.000 kr.

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stórikriki 2B
Hleðslustöð
IMG_8603.JPG
Skoða eignina Stórikriki 2B
Stórikriki 2B
270 Mosfellsbær
117.2 m2
Fjölbýlishús
413
801 þ.kr./m2
93.900.000 kr.
Skoða eignina Steinhöfði 4
Opið hús:23. ágúst kl 16:00-16:45
603 Steinhöfði.jpg
Skoða eignina Steinhöfði 4
Steinhöfði 4
110 Reykjavík
150.1 m2
Fjölbýlishús
412
932 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Kolagata 1 (204)
0C7D6193-35A7-400B-B165-78C6578A0597.jpeg
Skoða eignina Kolagata 1 (204)
Kolagata 1 (204)
101 Reykjavík
117.5 m2
Fjölbýlishús
322
1123 þ.kr./m2
132.000.000 kr.
Skoða eignina Svölutjörn 2
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Svölutjörn 2
Svölutjörn 2
260 Reykjanesbær
154.6 m2
Raðhús
413
582 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin