Glæsileg 166,2 fm 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð við Skipalón 8 í Hafnarfirði. Sér stæði í bílageymslu fylgir íbúðinni. Glæsilegt útsýni.
Eignin skiptist þannig að íbúðarhlutinn er 156,9 fm og sér geymsla á 1. hæð 9,3 fm, samtals 166,2 fm skv. HMS. Til viðbótar við birt flatarmál íbúðar eru tvennar yfirbyggðar svalir sem eru samtals 16,6 fm brúttó.Nánari lýsing: Forstofa með skáp. Eldhús og stofa í björtu alrými með glæsilegu útsýni. Útg. er á tvennar svalir, báðar yfirbyggðar með opnanlegu gleri. Eldhúsið er með góðu skápaplássi og eyju. Þrjú svefnherbergi eru í íbúðinni, þ.m.t. hjónaherbergið. Innaf hjónaherberginu er sér baðherbergi með baðkari (sturta yfir) og einnig fataherbergi. Þvottahús er sér innan íbúðarinnar. Baðherbergi með sturtu.
Sér geymsla á 1. hæð og einnig er hjóla- og vagnageymsla í sameign. Salur sem rúmar um 55 gesti er í húsinu með eldhúsi og öllu tilheyrandi fyrir veislur, fundi o.s.frv., til afnota gegn gjaldi fyrir eigendur íbúða í húsinu.
Frábær staðsetning þar sem stutt er í helstu þjónustu og falleg útivistarsvæði.
Nánari upplýsingar veitir Aron Freyr Eiríksson löggiltur fasteignasali í síma 772-7376 / aron@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is