Berglind Hólm lgfs. og RE/MAX kynna: Sérlega falleg, rúmgóð og mikið endurnýjuð sér hæð á besta stað miðsvæðis í Keflavík með sólpalli sem snýr í suður. Íbúðin er 4ra herbergja neðri sér hæð með sérinngangi og einkabílastæði. Árið 2019 var eignin nánast öll endurnýjuð innandyra á glæsilegan hátt en einnig er búið að fara í töluverðar endurbætur utanhúss og skolplagnir endurnýjaðar samkvæmt upplýsingum frá fyrri seljanda. Eignin skiptist í: forstofu, mjög stóra stofu þar sem hægt er að bæta við fjórða svefnherberginu ef þörf er á, 3 góð svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, þvottahús með góðu geymsluplássi og litla geymslu undir stiga rými. Á bak við húsið er sérbílastæði og hægt er að fara inn í eignina beint frá bílastæðinu í gegnum þvottahúsið.
Eignin er í stuttu göngufæri frá Reykjaneshöllinni, fjölbrautaskólanum, Holtaskóla, leikskóla, sundlauginni og öllum helstu verslunum sem til dæmis verslunarmiðstöðin Krossmói hefur upp á að bjóða, svo fátt eitt sé nefnt.
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is
Nánari lýsing eignar:Sérbílastæði er við bakhlið hússins. Frá bílastæðinu er hægt að ganga með fram gafli hússins að aðalinngangi hans en einnig er hægt að ganga beint frá bílastæðinu inn í eignina um sérinngang sem leiðir inn í þvottahús hennar.
Forstofa: Komið er inn í forstofu með fallegum ljósum flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa + borðstofa: Komið er inn úr forstofu inn í mjög stórt stofurými sem rúmar vel bæði setustofu og borðstofu. Fallegt og vandað harðparket er á gólfum í stofurýminu. Hægt er að ganga frá stofunni út á sér suðurverönd með skjólveggjum. Stofurýmið er það stórt að hægt er að bæta við auka svefnherbergi í hluta af stofunni og hefur eignin verið nýtt þannig á fyrri árum.
Eldhús: Eldhúsið er sérlega fallegt og allt endurnýjað síðan 2019. Innrétting er á tvo veggi með skemmtilegri eyju á milli. Eldhúsið er í sérrými en opið er að hluta milli eldhúss og stofu. Innrétting er dökk með ljósri borðplötu. Neðri skápar eru við glugga, á móti er innréttingin frá gólfi og upp í loft með innbyggðum ísskáp og nýlegum ofni í vinnuhæð ásamt búrskáp og fleira, í eyjunni er eldavél og góðar skúffur ásamt barborði sem hægt er að sitja við. Gólfhiti er rýminu. Innangengt er frá eldhúsinu inn í sér þvottaherbergi.
Baðherbergi: Baðherbergið er einnig glæsilega endurnýjað með fallegum ljósum flísum á gólfi og á veggjum. Stór sturta beint á gólf er í enda baðherbergisins með glervegg með skyggðu gleri og svörtum ál ramma. Dökk innrétting er undir vaskaborði með ofanáliggjandi vaski. Á vegg fyrir ofan vask er fallegur hringspegill með hulinni lýsingu. Gluggi er á baðherberginu og gólfhiti í gólfum.
3 x svefnherbergi: Þrjú góð svefnherbergi eru í eigninni. Öll herbergin eru með fallegu vönduðu harðparketi á gólfi. tvö af herbergjunum eru einnig með góðum fataskápum sem ná upp í loft. Eins og áður sagði þá er auðvelt að bæta við fjórða svefnherberginu i stofurýminu ef þörf er á.
þvottaherbergi: Sér þvottaherbergi er inn af eldhúsinu með góðri innréttingu þar sem gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, flísum á gólfi og hurð þar sem hægt er að ganga út úr eigninni út á bílastæðið sem fylgir íbúðinni.
Geymsla: Undir stiga rými er lítil geymsla innan íbúðar. Einnig er sameiginleg geymsla með efri hæðinni sem íbúðin hefur aðgengi að.
Framkvæmdir samkvæmt upplýsingum frá fyrri eiganda:
Eignin var mikið endurnýjuð haustið 2019, eftirfarandi var endurnýjað:Sprunguviðgerðir og utanhúss málning sumarið 2019
Nýlegir gluggar eru í íbúðinni, skipt um allar útihurðar.
Eldhúsinnrétting og blöndunartæki
Ný innbyggð uppþvottavél, ísskápur og helluborð
Allt nýtt inn á baði og þvottaherbergi.
Fataskápar, innihurðar, sólbekkir
Rafmagnsefni og lýsing. Pípulagnir endurnýjaðar að hluta, gólfhiti í eldhúsi og baði
Skolplagnir endurnýjaðar.
Parket, flísar.
Sólpallur byggður sumarið 2020
Allar nánari upplýsingar veitir Berglind Hólm lögg.fasteignasali í síma 694-4000 eða berglind@remax.is