Laugardagur 15. mars
Fasteignaleitin
Skráð 14. mars 2025
Deila eign
Deila

Nýbýlavegur 46

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
88.2 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
64.900.000 kr.
Fermetraverð
735.828 kr./m2
Fasteignamat
53.400.000 kr.
Brunabótamat
43.550.000 kr.
Mynd af Hafdís Rafnsdóttir
Hafdís Rafnsdóttir
Fasteignasali
Byggt 1966
Garður
Gæludýr leyfð
Sérinng.
Fasteignanúmer
2064468
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
2
Vatnslagnir
ekki vitað
Raflagnir
Dregið í rafmagn í íbúð á allflestum stöðum endurnýjað öryggi og settur upp lekaliði. Nýir tenglar á flestum stöðum.
Frárennslislagnir
ekki vitað
Gluggar / Gler
ekki vitað
Þak
ekki vitað
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Kvöð / kvaðir
 Sólpallur við eignina er ekki þinglýstur á íbúðina.
Fasteignasalan TORG KYNNIR:
Þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð í reisulegu fjórbýli í Kópavogi sem er teiknað af Kjartani Sveinssyni. Mikið endurnýjuð íbúð með sérinngangi og sólpalli til suðurs. 
Íbúðin er í heild skráð 88,2 fm. Íbúðin skiptist í forstofu, eldhús, stóra stofu, tvö svefnherbergi, baðherbergi og geymslu/þvottaherbergi.
Nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir, löggiltur fasteignasali, s. 820-2222 og hafdis@fstorg.is.


NÁNARI LÝSING: 
Forstofa: Komið er inn um sérinngang í forstofu. Inn af forstofu er geymsluherbergi/þvottahús. Geymsla er inn af geymsluherberginu/þvottahúsinu.
Stofa: Stofan er stór með gluggum til suðurs. Stofan rúmar einnig borðstofu en í dag nýtt sem sjónvarpshorn og vinnuaðstaða.
Eldhús: Ljósgrá máluð innrétting með nýlega endurnýjaðri ljósri borðplötu, eldhúsvaski og blöndunartækjum sem og endurnýjuðum eldhústækjum. Gott rými fyrir borðkrók er við norður glugga.
Baðherbergi: Snyrtilega endurnýjað með ljósum flísum á gólfi og baðkari. Gluggi til norðurs með opnanlegu fagi.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með innbyggðum fataskáp.
Barnaherbergi: Herbergi með rennihurð og útgengt út á góðan suðurpall í garði.
Gólfefni: Harðparket á öllum rýmum nema baðherbergi og geymslu. Endurnýjað af fyrri eigendum. 
Þvottahús: Samkvæmt teikningum er þvottahús inn af forstofu en er í dag notað sem geymsluherbergi. Hægt að setja upp tengi fyrir þvottavél að sögn fyrri eiganda, þyrfti að skoða. Við hlið íbúðar er sameiginleg hitakompa þar sem samkomulag er um að íbúð hafi þvottaaðstöðu.
Garður: Stór sameiginlegur garður báðum megin við húsið.
Endurbætur og framkvæmdir á íbúð og húsi að sögn seljanda:
2020: Ný eldhústæki (Bakaraofn, helluborð og örbylgjuofn)
2021: Baðherbergi gert upp að mestu. Nýtt baðkar, nýr vaskur, blöndunartæki, vatnslás og vaskaskápur. Nýjar flísar á gólfum og votrými. Nýr ofn.
2022: Ný borðplata í eldhúsi. Ný blöndunartæki og vaskur. 
2022: Dregið í rafmagn í íbúð á allflestum stöðum og endurnýjað öryggi og settur upp lekaliði. Nýir tenglar á flestum stöðum
2024: Nýtt klósett. 
2025: Nýr gufugleypir og ný uppþvottavél. 
 
Niðurlag: Þetta er falleg og mikið endurnýjuð þriggja herbergja íbúð í Kópavogi. Stutt er í alla helstu þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir, löggiltur fasteignasali, s. 820-2222 og hafdis@fstorg.is.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa á fasteign:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald kr.  2.700.- kr. af hverju skjali.  
3. Lántökukostnaður lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.  
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. samningi.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sanneynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/08/202034.800.000 kr.41.900.000 kr.88.2 m2475.056 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Engihjalli 9
Skoða eignina Engihjalli 9
Engihjalli 9
200 Kópavogur
89.2 m2
Fjölbýlishús
32
716 þ.kr./m2
63.900.000 kr.
Skoða eignina Lækjarhjalli 34
Skoða eignina Lækjarhjalli 34
Lækjarhjalli 34
200 Kópavogur
72 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
901 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Kjarrhólmi 24
Skoða eignina Kjarrhólmi 24
Kjarrhólmi 24
200 Kópavogur
86.9 m2
Fjölbýlishús
312
770 þ.kr./m2
66.900.000 kr.
Skoða eignina Lundarbrekka 8
Skoða eignina Lundarbrekka 8
Lundarbrekka 8
200 Kópavogur
99 m2
Fjölbýlishús
312
656 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin