Þriðjudagur 29. september
Fasteignaleitin
Skráð 9. apríl 2026

SPÁNAREIGNIR - Las Colinas Golf

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
100 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
38.500.000 kr.
Fermetraverð
385.000 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Byggt 2010
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
106090426
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
37 fm
Upphitun
Kæling/Hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR: *TÆKIFÆRI TIL AÐ EIGNAST PENTHOUSE Á LAS COLINAS Á FRÁBÆRU VERÐI* *37FM SÓLRÍKAR SVALIR FRÁ STOFU* *SJÁVARÚTSÝNI* *LYFTA OG SÉR STÆÐI* *FALLEGUR SUNDLAUGARGARÐUR, TVÆR SUNDLAUGAR* 

FRÁBÆR KAUP.
Eignin skiptist í 2 svefnherbergi og 2 baðherbergi. Eldhús með góðri innréttingu, þvottahús inn af eldhúsi. Stofa er björt og falleg, með útgengi út á stórar 37 fm svalir með glæsilegu útsýni. Eignin snýr í suðaustur. 
Eigninni fylgir sér geymsla og sér stæði. Lyfta í húsinu. 
Sundlaugargarðurinn er stórglæsilegur, og nóg pláss fyrir alla. 
Las Colinas golfsvæðið hefur verið valið besta golfsvæði á Spáni nokkur undanfarin ár og er talið eitt besta golfvallasvæði í Evrópu og er því hér um einstakt tækifæri að eignast vandaða eign á frábæru verði á þessum vinsæla stað. Um 1 klst. akstur suður af Alicante.

Einstakt gróið umhverfi, með allt það besta sem Las Colinas hefur upp á að bjóða rétt við þröskuldinn. Skemmtilegar göngu- og skokkleiðir og ca. 10 mín akstur á Campoamor ströndina.

Nánari upplýsingar: Berta Hawkins, löggiltur fasteignasali. berta@spanareignir.is.  0034 615 112 869

Umhverfið á Las Colinas er einstakt. Íbúar hafa aðgang að glæsilegu klúbbhúsi með úrvals veitingastöðum, og einnig að einkastrandklúbb á Campoamor ströndinni. Nýtt spa og líkamsræktarstöð, tennis, sameiginlegur sundlaugargarður ofl. Algjör lúxus fyrir vandláta.

Góðir golfvellir eru í næsta nágrenni auk Las Colinas golvallarins, t.d. La Finca, glæsilegan PGA golfvöll. Las Ramblas, Campoamor, Villamartin.
Ca. 10 mín akstur er niður á ströndina í Campoamor þar sem íbúar Las Colinas hafa aðgang að einkastrandklúbb. Ca. 10-15 mín. akstur í nýju verslunarmiðstöðina La Zenia Boulevard.
Hér er um að ræða góða eign á frábærum stað fyrir fólk sem vill njóta lífsins, spila golf og eiga góðar stundir með fjölskyldu og vinum.

Verð 275.000 evrur  (38.500.000 ISK,  gengi 1Evra=140ISK)

Hægt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka.
Við höfum selt fasteignir á Spáni frá 2001. Tryggir þekkingu, öryggi og reynslu.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðu okkar: www.spanareignir.is

Kostnaður við kaupin:
9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca.12%.

Eiginleikar: stórar svalir, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, golf, 
Svæði: Costa Blanca, Las Colinas,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
106090426

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Drápuhlíð 7
Efsta hæð
Skoða eignina Drápuhlíð 7
Drápuhlíð 7
105 Reykjavík
116.2 m2
Fjölbýlishús
413
706 þ.kr./m2
82.000.000 kr.
Skoða eignina Hamrahlíð 37
Skoða eignina Hamrahlíð 37
Hamrahlíð 37
105 Reykjavík
81.7 m2
Fjölbýlishús
312
869 þ.kr./m2
71.000.000 kr.
Skoða eignina Lynghagi 16
Skoða eignina Lynghagi 16
Lynghagi 16
107 Reykjavík
86.8 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
312
824 þ.kr./m2
71.500.000 kr.
Skoða eignina Hjarðarhagi 23
Opið hús:29. sept. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Hjarðarhagi 23
Hjarðarhagi 23
107 Reykjavík
112.8 m2
Fjölbýlishús
412
868 þ.kr./m2
97.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin