Laugardagur 19. apríl
Fasteignaleitin
Opið hús:23. apríl kl 14:00-16:00
Skráð 17. apríl 2025
Deila eign
Deila

Birkihraun 6

EinbýlishúsNorðurland/Mývatn-660
113 m2
5 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
44.500.000 kr.
Fermetraverð
393.805 kr./m2
Fasteignamat
28.800.000 kr.
Brunabótamat
60.550.000 kr.
SS
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1981
Þvottahús
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2163348
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Upprunalegar
Raflagnir
Upprunalegar
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Gluggar eru upprunalegir en búið er að endurnýja gler
Þak
Þak var endurnýjað árið 2022
Lóðarréttindi
Leigulóð
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita - Búið er að endurnýja hluta af ofnum
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Gallar
Þak var endurnýjað árið 2022 en fyrir það hafði þakið lekið og eru ummerki um það í loftaklæðningu.
Hurðar vantar á fataskáp í barnaherbergi
Skemmd er í baðinnréttingu
Einn rafmagnstengill í þvottahúsi er óvirkur að sögn leigjanda.
Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Birkihraun 6 - Vel skipulagt 5 herbergja einbýlishús á einni hæð í Mývatnssveit - stærð 113,0 m².


Eignin skiptist í forstofu, gang, eldhús, stofu, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu.

Forstofa er með flísum á gólfi og tvöföldum fataskáp.
Eldhús, hvít snyrtileg innrétting með góðu skápa- og bekkjarplássi og vínyl parket á gólfi. Borðkrókur og gangur eru með plast parketi á gólfi. 
Stofan er ágætlega rúmgóð, með plast parketi á gólfi og stórum gluggum og hurð út á verönd með timbur skjólveggjum.
Svefnherbergin eru fjögur, ýmist með parketi eða plast parketi á gólfi og í tveimur herbergjum eru fataskápar. 
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri viðarlitaðri innréttingu, wc, baðkari, sturtu og opnanlegum glugga.
Þvottahús nýtist sem annar inngangur fyrir eignina, þar eru flísar á gólfi og bekkur með vask.
Geymsla er inn af þvottahúsinu með flísum á gólfi, hillum og opnanlegum glugga. 

Annað
- Þak var endurnýjað árið 2022 
- Gler hefur verið endurnýjað.
- Búið er að endurnýja hluta af hitaveituofnum.
- Bílaplan er malbikað. 
- Eignin er laus til afhendingar í maí 

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vestursíða 36-301
Vestursíða 36-301
603 Akureyri
74.9 m2
Fjölbýlishús
312
621 þ.kr./m2
46.500.000 kr.
Skoða eignina Sunnuhlíð 21 íbúð G
Sunnuhlíð 21 íbúð G
603 Akureyri
82.2 m2
Fjölbýlishús
311
546 þ.kr./m2
44.900.000 kr.
Skoða eignina Laugarvegur 37 íbúð 301
Bílskúr
Laugarvegur 37 íbúð 301
580 Siglufjörður
120 m2
Fjölbýlishús
413
366 þ.kr./m2
43.900.000 kr.
Skoða eignina Lækjarvellir 2
Skoða eignina Lækjarvellir 2
Lækjarvellir 2
610 Grenivík
104.5 m2
Parhús
313
436 þ.kr./m2
45.600.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin