Miklaborg kynnir:
Vel skipulagðar og vandaðar tveggja til fimm herbergja íbúðir á frábærum útsýnisstað í nýju hverfi við Ártúnshöfðann. Flestar íbúðir með stæði í bílgeymslu. Vandaðar innréttingar frá Voke 3 og steinn á borðum. Sérstæð loftræsting í öllu íbúðum sem eykur loftgæði og takmarkar ryk, dregur úr rakamyndun og minnkar frjókorn í loftinu. Sérverk ehf, traustur byggingaverktaki í 35 ár.
Allar nánari upplýsingar veitir Kjartan Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Íbúð 302: Góð 3ja herbergja íbúð á 3.hæð með 8,2 fm svölum til vesturs ásamt stæði í bílgeymslu. Íbúðin er skráð 92,5 fm, þar af geymsla 9,5 fm. Komið inn í anddyri með skáp. Eldhús er með vandaðri innréttingu, steinn á öllum borðum. Vönduð tæki frá Ormsson. Eldhús skiptir upp stofu og borðstofu. Baðherbergið er með sturtu, góð innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Steinn á borðplötu og undirlímdur vaskur. Tvö góð svefnherbergi með fataskápum. Eignin er með sérstæðri loftræstingu sem eykur loftgæði og dregur úr rakamyndun. Eignin afhendist fullbúinn án megin gólfefna.
Möguleiki á að kaupa auka bílastæði.
Allar nánari upplýsingar veita:
Kjartan Ísak Guðmundsson löggiltur fasteignasali í síma 663-4392 eða kjartan@miklaborg.is
Ólafur Finnbogason löggiltur fasteignasali í síma 822 2307 eða olafur@miklaborg.is
Svan Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697-9300 eða svan@miklaborg.is
Íris Arna Geirsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 770-0500 eða iris@miklaborg.is
Steinhöfði 2-4 er 22 íbúðar hús með tveimur stigagöngum og eru flestar íbúðir með stæði í bílgeymslu. Alls eru 141 íbúð á lóðinni í fjórum húsum. Húsið er teiknað af Ask arkitektum og var við hönnun húsins haft að leiðarljósi að gera íbúðirnar bjartar og vel skipulagðar. Fallegur inngarður er sunnanmegin við húsin og stórbrotið útsýni úr flestum íbúðum við Steinhöfða og Eirhöfað 1a og 1b sem kemur í sölu síðar.
Borgarhöfðinn er stærsta uppbyggingasvæði í Reykjavík og verða þar reistir 3 skólar ásamt verslun og þjónustu. Hverfið er mjög miðsvæðis og stutt í helstu stofnanir og þjónustu.
Nánari upplýsingar um svæðið er hægt að sjá á heimasíðu um Borgarhöfðann. www.borgarhofdi.is
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
110 | 89 | 81,9 | ||
110 | 89 | 81,9 | ||
110 | 88,7 | 84,9 | ||
110 | 88,7 | 84,9 | ||
110 | 84,7 | 84,4 | ||
110 | 95,1 | 89,9 |