Viltu fasteignir kynna til sölu fallega134 fermetra 5 herbergja hæð í Hlíðunum. Íbúðin skiptist í fjögur rúmgóð svefnherbergi, stofu, eldhús, forstofu, baðherbergi og þvottahús inn af baðherbergi. Lítil geymsla er innan íbúðar, köld geymsla í kjallara og sameiginlegt þvottahús/geymsla. Stórglæsileg endurnýjuð sérhæð með sérinngang á rólegum stað í þríbýlishúsi í Hlíðunum.
Fáðu nánari upplýsingar og gerðu tilboð á sölusíðu eignarinnar.
Allar nánari upplýsingar veita:
Elísabet Kvaran löggiltur fasteignasali í síma 781-2100, elisabet@viltu.is
Karólína Íris löggiltur fasteignasali í síma 772-6939, karolina@viltu.is
Nánari lýsing: Komið er inn í forstofu sem lögð er íslensku stuðlabergi á gólfi. Inn af forstofugangi er hol með stórum fataskáp. Eldhús er með svarti innréttingu frá Kvik og svartri steinborðplötu með innfelldum svörtum vaski og svörtum blöndunartækjum frá Grohe, bakarofn frá Miele og extra stórt spanhelluborð frá AEG og svartur háfur. Ísskápur frá AEG og uppþvottavél frá Bosch eru innbyggð og fylgja íbúðinni. Veggur fyrir ofan innréttingu er flísalagður með hvítum flísum en á vegg eru eikarhillur.
Stofa er björt með stórum gluggum. Þrjú rúmgóð barnaherbergi eru í íbúðinni, úr einu er gengið út á svalir. Hjónaherbergi er rúmgott með fataskápum. Úr hjónaherbergi er gengið út á svalir. Baðherbergi er flísalagt, með upphengdu salerni og sturtuklefa, ásamt blöndunartækjum frá Vola. Innréttingar á baðherbergi eru sérsmíðaðar og loft tekið niður. Inn af baðherbergi er þvottahús með plássi fyrir þvottavél, þurrkara og þvottasnúrur.
Íbúðin var nær algjörlega endurnýjuð á árunum 2015-2017. Íbúðin er öll lögð olíubornu eikarplankaparketi, að undanskildu baðherbergi og forstofu, en gólfefni voru endurnýjuð 2015. Yfirfelldar hurðar eru í íbúðinni, en hurðar og fataskápar voru einnig endurnýjaðar 2015.
Hiti er í öllum gólfum nema svefnherbergjum og þvottahúsi. Allar ofnalagnir og neysluvatnslagnir voru endurnýjaðar 2015. Rafmagn var endurnýjað 2015, nýir rafmagnstenglar, tvær nýjar rafmagnstöflur og dregið nýtt í.
Gluggar eldhúsi og stofu voru endurnýjaðir 2024.
Íbúðin var öll máluð og gluggakistur lakkaðar 2025.
Nýlega var húsi steypuþétt og málað að utan og dren endurnýjað.
Næg bílastæði eru við húsið.
Eign í sérflokki.
Fyrirvarar:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill seljandi því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteignarinnar fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
---|---|---|---|---|---|
05/01/2018 | 52.550.000 kr. | 65.000.000 kr. | 134 m2 | 485.074 kr. | Já |
06/03/2015 | 37.650.000 kr. | 41.000.000 kr. | 134 m2 | 305.970 kr. | Já |
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
105 | 105.6 | 108,9 | ||
105 | 112.4 | 117 | ||
105 | 116.5 | 122 | ||
105 | 112 | 114 | ||
105 | 112.5 | 119,9 |