Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 3ja herb. enda íbúð á 4. hæð að Kugguvogi 26 í Reykjavík. Íbúðinni fylgir sér merkt stæði í lokuðum bílakjallara með uppsettri rafhleðslustöð. Ekkert íbúðarrými er fyrir ofan þessa íbúð sem veitir aukið næði og ró. Lyfta er í húsinu og rúmgóðir stigagangar. Svalir eru út frá stofu og þar nýtur sólar við frá morgni og inn í daginn. Útsýni er til austurs í átt að yfir í Grafarvoginn og að Úlfarsfelli og Móskarðshnúkum. Aukin lofthæð er í íbúðinni. Utan á liggjandi fallegar gardínur í stofu og herbergjum geta fylgt. Virkilega fallega innréttuð íbúð með HTH innréttingum, gólfefnum frá Álfaborg og AEG tækjum. Rafmagnshleðslustöð er í stæði í bílageymslu.
Göngubrú með lyftu er yfir Sæbraut og hraðatakmarkanir eru í götunum í hverfinu. Flottir hjóla- og göngustígar eru í og við hverfið sem leiða mann m.a. í náttúruparadísina í Elliðaárdalnum og Laugardalnum.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is
Eignin skiptist í forstofu, tvö svefnherbergi, eldhús, stofu, baðherbergi og geymslu. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 88,6 m2. Stæði í bílageymslu er fyrir utan uppgefna fermetra.*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA
**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!
Smelltu hér og þú færð söluyfirlit straxNánari lýsing:
Forstofa er inn af teppalagðri sameign með lyftu. Vítt er til veggja í sameign og er hægt að hafa lokaða hurð að þessari og annarri íbúð innan sameignar. Inni í íbúð er komið inn á parketlagt holl. Hvít innrétting á gangi er fyrir yfirhafnir.
Stofa og borðstofa eru í opnu rými með eldhúsi. Vegna endaíbúðarinnar eru gluggar á tveimur hliðum sem fylla íbúðina af náttúrulegri birtu. Aukin lofthæð í allri íbúðinni gerir rýmin enn rúmbetri og glæsilegri. Úr stofu er gengið út á um
4,8 m2 suðaustursvalir með fallegu útsýni yfir Grafarvog, Úlfarsfell og Mosfellsheiði. Á svölunum nýtur morgunsólar og birtu langt fram eftir degi.
Eldhús er með vandaðri hvítri HTH innréttingu þar sem efri skápar eru viðarlitaðir. Borðplatan er úr Silestone kvartssteini með undirlímdum vaski. Innbyggð AEG uppþvottavél, ísskápur og frystir fylgja ásamt AEG ofni, helluborði og háfi.
Herbergi I er rúmgott með fjórföldum fataskáp sem nær upp í loft. Frá herberginu er fallegt útsýni til austurs yfir Grafarvog og til fjalla.
Herbergi II er einnig rúmgott með innbyggðum þreföldum fataskáp og sama fallega útsýni.
Baðherbergi er flísalagt á veggjum og gólfi með rúmgóðri þröskuldslausri sturtu með hertu gleri. Falleg baðinnrétting með svartri borðplötu, vegghengt salerni, handklæðaofn og tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er sér í sameign á jarðhæð.Skráð 7,6 m2 (merkt 0016).
Bílageymsla er lokuð og fylgir eigninni sérmerkt bílastæði með uppsettri rafhleðslustöð.
Í sameign eru
hjóla- og vagnageymsla ásamt snyrtilegum og rúmgóðum sameignarrýmum. Húsið býður einnig upp á
fallegan sameiginlegan garð sem er staðsettur ofan á bílakjallaranum. Garðurinn er skjólgóður, lokaður af frá umferð og býður upp á notalegt útisvæði fyrir íbúa hússins.
Sérsaumaðar gardínur frá
Euro Blinds, hannaðar sérstaklega fyrir íbúðina, geta fylgt með samkvæmt samkomulagi.
HúsiðHúsið var byggt árið 2023 af
Stofnhúsum og einkennist af vönduðum frágangi og góðu efnisvali. Innréttingar eru frá
HTH, eldhústæki frá
AEG, gólfefni frá
Álfaborg og borðplötur úr
Silestone kvartssteini. Ál/tré gluggar og vandaður frágangur gera húsið bæði endingargott og viðhaldslítið.
StaðsetningKuggavogur er í hjarta Vogabyggðar, eins mest spennandi nýbyggingahverfis Reykjavíkur. Stutt er í leik- og grunnskóla, verslanir, þjónustu og veitingastaði.
Göngubrú yfir Sæbraut tengir hverfið við Laugardal og þaðan eru bæði Laugardalur og Elliðaárdalur í þægilegu göngufæri. Frábærar göngu- og hjólaleiðir liggja um hverfið og meðfram strandlengjunni.
Helstu kostir- Endaíbúð á 4. hæð.
- Engin íbúð fyrir ofan.
- Byggt árið 2023.
- Aukin lofthæð í allri íbúðinni.
- Bjart alrými með gluggum á tveimur hliðum.
- Opið útsýni yfir Grafarvog, Úlfarsfell og Mosfellsheiði.
- Um 4,8 fm suðaustursvalir.
- Vandaðar HTH innréttingar.
- AEG eldhústæki.
- Silestone kvartsborðplata.
- Sérsaumaðar gardínur frá Euro Blinds.
- Sérmerkt bílastæði í lokuðum bílakjallara.
- Uppsett rafhleðslustöð við bílastæðið.
- 7,6 fm sérgeymsla.
- Lyfta frá bílakjallara upp á allar hæðir.
- Hjóla- og vagnageymsla í sameign.
- Skjólgóður sameiginlegur garður eingöngu fyrir íbúa hússins.
Áætlað fasteignamat árið 2027: 76.750.000 kr.
-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-