LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu bjarta og rúmgóða 3ja herbergja íbúð á 3. hæð með suðursvölum við Grímsgötu 8 í Urriðaholti, Garðabæ.
Um er að ræða vel skipulagða eign með tveimur góðum svefnherbergjum, björtu alrými og vönduðum innréttingum. Eignin er á vinsælum stað í Urriðaholti þar sem stutt er í skóla, leikskóla, útivistarsvæði og alla helstu þjónustu.
Birt stærð eignarinnar er 89,5 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er sérgeymsla á jarðhæð 4,1 fm.
Eignin skiptist í forstofu, stofu og borðstofu í opnu rými, eldhús, tvö svefnherbergi og baðherbergi með innréttingu fyrir Combi AEG þvottavél sem fylgir. Eigninni fylgir sérgeymsla ásamt hlutdeild í sameign, sameiginlegri útigeymslu með hillum og sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Allar gardínur og ljós fylgja.
SMELLTU HÉR TIL AÐ FÁ SENT SÖLUYFIRLIT – Allar frekari upplýsingar veitir Þórey í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.is
Nánari lýsingForstofa með fataskáp, flísar á gólfi.
Eldhús með vandaðri innréttingu frá GKS trésmiðju, borðplötu úr kvartssteini og vönduðum eldhústækjum frá Siemens. Innbyggður kæli-/frystiskápur og innbyggð uppþvottavél sem fylgir, harðparket á gólfi.
Stofa og borðstofa í björtu og opnu rými með útgengi á suðursvalir, harðparket á gólfi.
Hjónaherbergi með fataskáp, harðparket á gólfi.
Barnaherbergi með fataskáp, harðparket á gólfi.
Baðherbergi flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu með Unidrain niðurfalli. Innrétting með Combi AEG þvottavél sem fylgir, flísar á gólfi.
Sérgeymsla á jarðhæð með máluðu gólfi.
Bílastæði utandyra með hleðslustöðvum.
Húsgjöld eignarinnar eru 24.614 kr. á mánuði og innifela meðal annars almennan rekstur húsfélags, hita, rafmagn í sameign, þrif sameignar, húseigendatryggingu, framkvæmdasjóð og þjónustukaup vegna reksturs húsfélags.
Grímsgata 8 er fimm hæða fjölbýlishús með einu stiga- og lyftuhúsi. Í húsinu eru 19 íbúðir af fjölbreyttum stærðum og gerðum. Aðalinngangur hússins er á jarðhæð og hafa allar íbúðir sérinngang af svalagangi. Á jarðhæð eru sérgeymslur, hjóla- og vagnageymsla, tæknirými og sorpgeymsla. Á 2.–5. hæð eru íbúðir með inngöngum af svalagöngum sem tengjast stiga- og lyftuhúsi.
Nánari upplýsingar veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali / B.Sc. í viðskiptafræði, í síma 663 2300 eða á thorey@fastlind.isÁ heimasíðunni www.thorey.is má skoða umsagnir ánægðra viðskiptavina og kynna sér þjónustuna mína.
Allir kaupendur okkar fá Vildarkort Lindar. Með því að framvísa kortinu færð þú 30% afslátt hjá samstarfsaðilum: Húsgagnahöllin, S. Helgason, Flügger litir, Húsasmiðjan, Z brautir og gluggatjöld, Vídd, Parki, Betra bak, Dorma og Sýn.