Helgafell fasteignasala kynnir nýja þriggja herbergja fullbúna horníbúð merkt 0307 við Áshamar 5-7 í Hafnarfirði.
Birt stærð: 87,7fm., þar af er geymsla 5,5fm. í sameign.Verktaki: JE Skjanni ehf.Hlutdeildarlán í boði fyrir þessa íbúð.
Upplýsingar um hlutdeildarlán má finna hér
Sjá heimasíðu verkefnisins hérLýsing:Anddyri: Harðparket á gólfi og skápur.
Barnaherbergi: 9,2fm., harðparket á gólfi. Tvöfaldur skápur.
Hjónaherbergi: 11,2fm., harðparket á gólfi. Mikið skápapláss.
Baðherbergi: Rúmgott og flísalagt í hólf og gólf (flísar frá Agli Árnasyni), upphengt salerni, "Walk-in" sturta. Þvottahús innaf baðherbergi. Pláss fyrir þvottavél og þurrkara í
þvottahúsinu inn af baðinu.
Eldhús: Opið við stofu - U laga eldhúsinnrétting frá Kappa með góðu skápaplássi. Bosch ísskápur, uppþvottavél, helluborð, gufugleypir og bakaraofn. Öll tæki í eldhúsi frá Smith&Norland.
Stofa: Rúmgóð stofa með útgengi á suðaustur 5,3fm. svalir.
Sér geymsla í sameign á neðstu hæð.
Íbúðin er með gólfhita og er afhent fullbúin með gólfefnum, harðparket á gólfi og flísar í blautrýmum. Einangrun undir gólfhitalagnirnar og anhýdrít ílögn yfir gólfhitalagnirnar.
Endanlegur frágangur gólfefna er hluti af heildarhljóðvist hússins. Þ.e. tryggt er hljóðvist, með vönduðu undirlagi og réttum frágangi gólfefna.Hvítar 90cm yfirfelldar hurðir frá Parka með 90cm ljósopi.
Dyrasímakerfi með myndavél uppsett.
Ljósleiðari kominn í hús og inn í smáspennutöflu hverrar íbúðar.
RJ45 tengingar eru uppsettar og eru tengdar inn í smáspennutöflu. Loftnet er komið inn í smáspennutöflu.
Í sameign er
hjóla- og vagnageymsla.Teppalagðir stigagangar með lýsingu frá Lumex. Glerlokun með hurð frá stigagangi inn á íbúðarpalla á hverri hæð.
Lyfta gengur inn í íbúðarpallana á hverri hæð.
Vandaðar brunahurðir frá Parka inn í íbúðirnar.
Sameiginleg 95 stæði á lóðinni.
Búið er að leggja rafmagnslagnir að öllum stæðum án tengingar, sem hugsaðar eru fyrir rafmagnsbíla.
Barnvænt hverfi, undirgöng nálægt húsinu og er því góð gönguleið í skóla- og leikskóla. Ekki þörf að fara yfir umferðargötu á leið í skólann. Nýr leikskóli í sömu götu.
ATH: Myndir af íbúðinni geta verið úr samskonar eða svipaðri íbúð.
ATH: Svalalokanir sem sjást á tölvugerðri mynd eru ekki afhentar með íbúðunum.
Fyrir nánari upplýsingar hafið samband við sölumenn Helgafells fasteignasölu.